1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Page 33

1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Page 33
29 1. MAl sem þessir menn skrifa“, hug'saði Schirmer. Hann keypti „Hamburger Tageblatt" og „Altonaer Nachricht- en“, hvorttveggja stjórnarblöð, og settist á bekk í trjágarðinum. Það var sólskin og vorhlýja í lofti. Til hliðar við hann á bekknum sátu holdgrannir menn, í rifnum og van- hirtum klæðum. Atvinnuleysingjar. Schirmer tók „Altonaer Nachricht- en“ og las fregn frá Niirnberg: „í gapastokknum. Enn þá eru til svonefndar þýzkar konur og ungar stúlkur, sem eru fús- ar til fylgilags við Gyðinga. Fræðsl- an ein ætlar ekki að nægja til þess að betra þessar kvensur, sem hafa svikið kynstofn sinn. Vér verðum því að grípa til síðustu úrræða: Kven- fólk, sem leggur lag sitt við Gyðinga, verður því framvegis sett í gapa- stokkinn, leitt fram fyrir almennings- sjónir á prenti. Ef þessar kvensniftir geta ekki fyllst eðlilegum viðbjóði við Gyðingum, sem hverri þýzkri konu ætti að vera í blóð borin, þá skal óttinn við opinbera svívirðingu halda þeim frá að blanda blóði við menn af erlendum kynstofni. ■— •— ■— 1 X-götu nr. 31, II., hefir Gyðing- urinn Ernst M„ eigandi verzlunar- hússins W. & Co„ gert sér íburðar- mikið piparsveinshreiður. Þessi Gyð- ingur sést oft með þýzkum stúlkum. Ein af þessum kvensum, sem hefir svikið kynstofn sinn, og enn í dag lætur sér sæma að vera vinkona Gyð- ings, er Inga M. í R-götu 144, II. Hún er svo óskammíeilin, að láta Gyðing- inn leiða sig á almannafæri. •— •— •— Gyðingurinn Emil H. hefir í þrjú ár verið í þingum við Mörtu M. Frök- en M. hefir farið í langferðir með þessum Gyðingi. Bertha M„ Karlsgötu, 19 ára að aldri, hefir mök við Gyðinginn R. Þar sem henni nægir ekki einn Gyð- ingur, hefir hún fengið sér nýjan vin, Gyðinginn G. Að næturlagi sést hún oft standa í skuggaskotum milli húsa og annarhvor Gyðingurinn hjá henni. Iiún getur sjálf gert sér í hugarlund, hvað hún og Gyðingurinn eiga í vænd- um, ef komið verður að henni hér eftir á þvílíkum stefnumótum. Von- andi verður einhver hugrakkur Þjóð- verji til þess að bregða upp fyrir hórunni hennar eigin svívirðingu, og láta um leið Gyðingnum í té nauð- synlegar útskýringar.1) Alveg utan við sig tók Schirmer hitt blaðið, sem var stjórnarmálgagn í Hamborg. Þar las hann um það, að Gyðingur, Fritz Rosenfelder að nafni, hefði tekið svo nærri sér órétt þann og smánarlega meðferð, sem Gyðing- ar yrðu fyrir í Þýzkalandi, að hann réð sjálfum sér bana. Áður en liann dó, hafði hann skrifað bréf til Naz- istanna. í þessu bréfi sagði hann frá því, að hann færði Jíf sitt sem fórn fyrir kynstofn sinn, og hann bað Nazistana að kvelja ekki framar sak- lausa Gyðinga. Um þetta skrifar blaðið: „Gyðingurinn Fritz Rosenfelder er svo hygginn að hengja sig. Hafi Gyðingurinn Fritz Rosenfeld- er haldið, að honum tækist með þessu að breyta afstöðu Þjóðverja til Gyð- inga-kynstofnsins, þá ber dauði hans engan árangur. En yrst hann er nú 1) í blaðinu stóðu öll nöfn íullum stöfum.

x

1. maí - Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.