1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Side 38

1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Side 38
1. MAÍ 34 stund: „Ég er Marxistasvín og hefi baknagaS þjóðernishreyfinguna". Á tólfta degi fór hann að kvarta und- an svæsnari og svæsnari höfuðverk. Aðfaranótt 20. apríl fór Stefán P. allt í einu að hlæja. Hláturinn stöðv- aðist ekki. Hinir fangarnir 35, sem í herberginu voru, gátu ekkert að- hafst. Þeir gátu ekki hlegið með hon- um. Herbergið var ramlega læst og járngrindur fyrir gluggunum. Mað- urinn hló látlaust í tvær klukkustund- ir. Klukkan hálffimm um morgun- inn hætti hann að hlæja. Hann var dáinn. í „Hamburger Anzeiger“ 24. apríl stóð svohljóðandi dánartilkynning: „Samkvæmt órannsakanlegum vilja drottins andaðist af slysförum okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur og bróðursonur Stefán P.......“ Sama dag gat að lesa í „Hamburg- er Fremdenblatt“: „Verkamaðurinn Stefán P. reyndi í gær að flýja úr fangabúðunum við W. Þar sem hann fékkst ekki til að snúa aftur, þrátt fyrir þrítekna að- vörun varðmannanna, var hann skot- inn“. Sólin hélt áfram að skína, börnin léku sér. Foreldrar Stefáns þögðu. En stúlkan skrifaði Hitler ríkiskanzl- ara og sagði honum alla söguna. Hún var dæmd í 9 mánaða fangelsi fyrir ósannan söguburð. Og núna, á þessari stundu, situr hún í fangelsi. ALÞÝÐUBLAÐIÐ er málgagn Alþýðusambandsins. Stuðningur við það er stuðningur við hagsmuni alþýðunnar. Verkamaðurinn og 1. maí. Verkamaðurinn hefir gert 1. maí að útbreiðsludegi jafnaðarstefnunnar, 1. maí var í fyrstu af verkamönn- um ákveðinn frídagur, sem notaður var til þess að krefjast lögfestingar á 8 stunda vinnudegi. í dag er enn ein af aðalkröfunum stytting vinnudagsins. En kröfurnar hafa aukizt eftir því sem vélamenn- ingin hefir þróazt, því hver ný vél skapar aukið atvinnuleysi og eymd í þjóðfélagi einstaklingshyggjunnar •— auðvaldsskipulaginu. Þess vegna hefir vélamenningin orðið til þess að kröfur alþýðunnar hafa aukizt; hún heimtar, að hver vél, sem kemur í stað handar, verði til þess að auka velmegun fjöldans. í dag er höfuðkrafa alþýðunnar í öllum löndum, að auðvaldsskipulagið víki, en skipulag jafnaðarstefnunnar ríki. Skipulag auðvaldsins hefir sýnt, að því fylgir atvinnuleysi og allsleysi fyrir fjöldann, og þeir, sem hafa vinnu, vinna aðeins að því, að skapa meiri tekjur, meiri arð og auknar eignir handa einstaklingi, sem svo notar arðinn af vinnunni til þess að kaupa vélar, sem svifta svo marga af þeim, er áður höfðu atvinnu, til þess að arðurinn til hans geti orðið enn meiri. Krafa alþýðunnar er jafnaðarstefn- an í framkvæmd, en það þýðir vinnu handa öllum, og að arðurinn af vinnu hvers einstaklings verði notaður til þess að bæta kjör og aðbúnað fjöld-

x

1. maí - Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.