Afturelding - 01.06.1967, Side 18

Afturelding - 01.06.1967, Side 18
■ , I Andans skóla í Andans skóla eru margir réttvísir og strangir kennarar. Hér eru nöfn nokkurra: Vonbrigði og missir, brotnar vonir og sálar- angist. Þessir kennarar bera okkur boðskap frá hinum myrka ræðustóli neyðarinnar. En í ljósi eilífðarinnar birtir yfir andlitum þeirra, þegar við förum að trúa á kærleika Guðs og opnum okkur fyrir því, að allt miðar okkur til góðs. 1 liinum brennandi þyrnirunni býr Guð. Eldur þjáninganna lcynir ávallt Guðs syni þegar böndin eiga að brenna af fótum heilagra. Yfir liita þjáningarinnar er ávallt vakað af gull- smiðnum mikla, er Levís synir, Guðs vitni, eiga að hreinsast af allri hálfvelgju. sálar og bænir hans urðu kyrrlátari og með meiri gleðibragði. Að lokum snerust þær upp í lofgerð, fyrir veitta fyrirgefningu og náð. Þegar hann end- aði með þreföldu amen, bað bróðir okkar einnig og þakkaði Guði fyrir að opinbera sig. Ræn- ingjarnir urðu nú þögulir. Næsta dag sagði bróðir okkar í heyranda hljóði upp yfir alla, meðan þeir borðuðu einhvers konar fisksúpu: „Jæja, vinir, ég hef nú þegar heyrt ýmis- legt hræðilegt og nóg af blóti og ragni. Mig lang- ar til þess að segja ykkur dálítið frá orði Guðs. Annars hafa þeir tekið frá mér Biblíuna mína, en Guði séu þakkir, ég get sagt ykkur margt úr orði Guðs eftir minni.“ „Já, gerðu það,“ sögðu ræn- ingjarnir, við skulum hlusta. Bróðir okkar vissi ekki hversu lengi hann mundi verða þarna, svo að hann hugsaði að bezt væri að byrja á byrjun- inni. Þeir hlustuðu gaumgæfilega þegar hann sagði þeim frá sköpun heims og syndafallinu. Hann sagði þeim frá lögmálinu, sem Guð hafði gefið á Sínaí- Mannssonurinn vakir yfir þér eins og móðir við beð barnsins síns, til að sjá um það, að ekki skuli eitt einasta hár farast á höfði þér. Óttast ekki! Treystu Drottni! Úr djúpi þjáning- anna kemur enn í dag bezti efniviðurinn, mestu hæfileikarnir í þann söng, sem sunginn verður á strönd Glerhafsins. Samstarfsmaður þinn veifar sigurpálmanum, og englar Guðs hafa reist hlið fyrir sigurvegarana. Brátt er tími þjáninganna á enda. Friðarhöfðingi! Návist þín veitir mér fullkomið öryggi Verði ég að deyja þá dey ég í þér. Það nægir. Þú hefur samúð með mér, og ég er þinn, að fullu og öllu og að eilífu er ég þinn. fjalli. Svo sagði hann þeim frá spámönnunum, og dvaldi góða stund við 53. kafla Jesaja spá- manns. Að lokum talaði hann um þjáningar og dauða Drottins Jesú, hið heilaga lamb Guðs. Þetta hafði djúp áhrif á þessa harðsvíruðu og kaldrana- legu menn. Daginn eftir sagði foringi flokksins: „Segðu okkur þetta allt aftur, sem þú sagðir okk- ur í gær, söguna um það, hvernig þeir hæddu og slógu og krossfestu Jesúm.“ Þegar bróðir okkar kom að frásögunni um illvirkjana tvo, anrian til hægri og hinn til vinstri handar frelsaranum, og greindi frá því, hvernig annar hefði frelsazt, er hann játaði sig opinberan syndara, þá braut for- inginn af sér öll bönd, stökk á fætur og hrópaði: „Félagar, ég ætla líka að játa það, sem ég hef gert. Það sem á eftir kom, hræðileg játning um glæpi og morð. .. . Það var skelfilegt að hlusta á játningu fangans. Svo sagði hann: „Ég hef gert allt þetta, getur Guð fyrirgefið mér?‘“ Frarah. á I>1h. 25. 18

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.