Afturelding - 01.06.1967, Blaðsíða 47

Afturelding - 01.06.1967, Blaðsíða 47
Frásögn um systurson páfa Framhald af bls. 12. ast með trélíkneski eftir götunum. Það sem menn- irnir þörfnuðust var fagnaðarerindið um Jesúm. Hann ympraði eitthvað á því, sem varð þess vald- andi, að biskupinn spurði að þvi hvort hann væri orðinn trúarlegur. Þá var tími Treccani kominn. Hann fann að hans innri maður hafði gerbreytzt og fjarlægzt svo ka- þólsku kirkjuna, að hann lilheyrði henni ekki lengur. Kall Guðs var svo voldugt, að ekkert gat lengur bundið hann. Þessi andlega sviksemi að lofa mönnum blessun með jrví að stökkva á þá vígðu vatni, og tilbeiðslan á trédrumbunum fyllti hann slíkum viðbjóði, að án þess að lmgsa sig um augna- blik frekar, yfirgaf hann skrúðgönguna og fór til trúboðskirkjunnar. Og nú í fyrsta skipti settist hann sem næst ræðu- stólnum, og á meðan glaumur og hrifning barst frá fólkinu, sem hyllti þessa skrautlegu skrúðgöngu, gekk Treccani fram, beygði kné sín og tók á móti Jesú, sem frelsara sínum. Loksins, loksins drakk hann inn til sín Guðs náð og kærleika í stórum teigum, og hjarta hans fylltist af gleði og hamingju. í fyrsta skipti fékk hann að smakka á sætleika samfélagsins við frels- ara sinn. Þegar hér var komið, var hvarf hans uppgötvað og biskupinn og prestarnir komu til þess að sækja hann. En hann svaraði þeim því til, að hann mundi aldrei koma aftur. Hann hafði fundið sinn stað við krossinn á Golgata. Skrúðgangan stóð enn sem hæst, þegar hinir trúuðu fóru niður til fjarðarins lil ])ess að skýra nýendurfædda bróðurinn. Það merkilega skeði, að allir íbúar bæjarins svikust úr skrúðgöngunni og flykktust niður að ströndinni til þess að horfa á skírnarathöfnina. Jafn hamingjusamur, nýfrelsaður maður hefur sennilega ekki oft verið skírður. Guð mætti hon- um dásamlega og skirði hann í Heilögum Anda. Þannig varð presturinn og guðfræðingurinn Bautista Treccani umbreyttur í bróður í Drottni, 5 hamingjusaman kristinn mann. Þessi undursamlega gleði og friður, sem hann nú loksins hafði fengið, spratt upp eins og si- streymandi lind, er ekkert lát var á. 1 einrúmi var hann fagnandi og gat aldrei nóg- samlega j)akkað Guði fyrir sitt undursamlega frelsi. Kærleikur hans til Jesú varð svo mikill að það fyllti alla veru hans. Þegar hann nú ekki lengur var prestur í þjón- ustu kaþólsku kirkjunnar, snéri hann heimleiðis, og hér mætti honum mikil og bitur reynsla. Dyrn- ar á bernskuheimilinu voru honum lokaðar. Syst- kini hans og hinir aðrir bæjarbúar voru mjög fjandsamlegir í hans garð. Einkum tók hann sárt afstaða móðurinnar, og hann bað mikið fyrir þeim, að j)au mættu frelsast. Margar aðrar þrengingar biðu hans. Dag nokk- urn, þegar iiann kom heim í herbergi sitt, sá hann að allar jarðneskar eigur hons voru gersamlega eyðilagðar. Ekkert hafði verið undanskilið í þessu æðiskasti nema dýna og prestshempa. Hitt allt var brotið og bramlað, skorið, rifið og táið, svo að engu varð bjargað af þvi. En Treccani hafði öðlazt stærri fjársjóð en jarð- neska fjármuni, og þeir sem höfðu lnigsað sér að vinna honum mein, náðu ekki tilgangi sínum. Treccani gat tekið á móti þessu án gremju eða að finna til haturs. Kallið til Indíánanna, sem hafði varðveitzt hið innra með honum, leiddi hann aftur til hins fátæka fólks Andesfjallanna. Hér lifði hann lífi í trú, því að hann hafði engan fjárhagslegan bakhjarl, sem gæti stutt hann. Ilann hafði bókstaflega farið út án pyngju, mals og skóa og reynt það, að Guð svíkur aldrei. Stundum liðu langir tímar, þegar engir peningar voru til, en hann var lítillátur og hinir trúuðu sáu fyrir nauðsynlegustu þörfum hans. Nú hafði hann boðskap að flytja um kærleika Guðs, um fórn Jesú, sem snerti alla syndara, um þennan blessaða frið, og allt þetta gat orðið stað- reynd fyrir þá sem vildu. Hann skrifaði móður sinni mörg bréf og vitnaði fyrir henni um hjálpræðið, og hvað það hafði þýtt fyrir hann sjálfan — prestinn, sem varð að láta ómenntaðan Indíána fræða sig um veg Guðs. Hægt og varlega fór hún að leita Guðs. Dag einn barst 47

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.