Afturelding - 01.06.1967, Page 19
Ógleyman-
legir
ágúst-
dagar
Sunnudaginn 20. ágúst vígðu Hvítasunnumenn
samkomuliús á Vopnafirði. Rétt fyrir þá helgi fóru
nokkurir vinir þangað austur af þessu tilefni.
Undanfarin mörg ár hafa vinir okkar á Vopna-
firði verið að byggja -þetta fallega hús fyrir starfið
þar á staðnum. Mest hefur þar komið við sögu hinn
óvenjulcga dugmikli og ósérhlífni maður, Aðal-
steinn Sigurðsson og Sveinn bróðir hans. Sú saga'
verður þó ekki sögð með réttu, nema minnzt sé á
þátttöku Sigurmundar Einarssonar í því verki, svo
og fleiri trúsystkina þar á staðnum. En fyrst og
fremst er það að þakka Guðs hjálp og náð, að þetta
hús stendur nú fullbyggt, og hægt var að vigja
það nefndan ágústdag á síðastliðnu sumri.
Húsið er tveir salir, annar minni og hinn stærri.
Þá er hin ágætasta íbúð fullgerð fyrir starfsmann
og fjölskyldu. íbúðin er þrjú rúmgóð herbergi,
ásamt rúmgóðu eldhúsi. Auðséð er á öllu að þarna
liafa vandvirkar hendur unnið að öllu, allt frá
grunnsteini að þaki. Þar má segja, að verkið lofi
meistarann.
Vígsluhátíðin fór fram kl. 2 nefndan sunnudag.
Sól skein í heiði þennan dag. Það fvrir sig var
yndislegt. Hitt vakti okkur þó miklu meiri fögnuð
að guðshúsið, sem vígt var, var yfirfullt, svo að
bera varð inn mörg aukasæti. Daníel Glad Ieiddi
samkomuna, Sigurmundur Einarsson lýsti ýmissu
í sambandi við byrjun starfsins og áframhald og
Ásmundur Eiríksson flutti vígsluræðu. Allt fór vel
fram og bar vitni um nærveru Guðs og blessun
hans yfir allri athöfninni.
Bæði fyrir og eftir sunnudaginn voru vakningar-
samkomur haldnar á Vopnafirði við góða aðsókn.
Á mánudag þurftu nokkurir að hverfa heim á
leið af þeim sem komu að sunnan. En allt fyrir
það var samkoman um kvöldið með ágætum. Þá
skírðust 4 biblíulegri skírn, en það er alltnf ytra
tákn þess, sem fram hefur farið í hjartanu (Post.
2, 37—38). Eftir skírnina neyttu yfir 20 manns
kvöldmáltíðar Drottins. Var þetta óviðjafnanleg
stund og ógleymanleg með öllu. Vegna þess að
þetta var ekki ákveðið fyrr en í lok þessarar sam-
komu, voru ekki allir viðstaddir á þeirri stund,
sem hefðu viljað það, þar sem þeir vissu ekki um
að komið yrði saman kringum borð Drottins.
Það er ósk okkar að Drottinn megi leiða starfið
á Vopnafirði eins farsællega á komandi tíma og
hingað til hefur einkennt það. Allar likur eru fyrir
því að fastur maður fari þangað austur nú innan
skamms tíma til þess að taka starfið að sér.
Verði Guðs vilji með þessa blómlegu byrjun á
Vopnafirði á allan hátt. Megi hún verða hvöt fvrir
marga aðra litla hópa til þess að vinna trúlega
að verki Drottins, hver á sínum stað. Á. E.
EF ÞIÐ VILJIÐ VITA
Fíladelfíusöfnuðurinn í Reykjavík hefur reglu-
bundnar samkomur árið um kring, þessa daga.
Vakningasamkomur alla sunnudaga kl. 8.
Fimmtudaga kl. 8:30. Þriðjudaga ýmist biblí-
lestra eða bœnasamkomur. Allir eru hjartan-
lega velkomnir á samkomur þessar, bœði inn-
anbœjarmenn og utanbœjar.
19