Afturelding - 01.06.1967, Síða 45
virða hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og Mamm-
on“ (Matt. 6,24). Hlustið einnig á hin dýrmætu
orð Jesú: „Vakið því, þar eð þér vitið eigi dag-
inn né stundina" (Matt. 25,13).
Þeir sem neita að hlýða Andkristi munu tapa
vinnu sinni. Þeim mun verða ómögulegt að fá
keypta fæðu. Vinir þeirra munu hata þá og munu
segja: „vitið þér ekki, að allur heimurinn liefur
beðið eftir þessum manni.“
Bylgjur ranglætis munu ganga yfir heiminn. Að-
eins fáir rnunu færir um að veita viðnám, því að
það mun þýða píslarvættisdauða að standa á móti
Andkristi. Hverjir eru þeir, sem tnunu komast und-
an? Það eru þeir, sem frelsaðir eru fyrir hið dýr-
mæta blóð Jesú Krists. Endurfæddir menn og kon-
ur, sem framganga í Andanum og lifa heiliigu lífi.
Ég bið yður um að undirbúa yður nú svo, að þér
komist undan hinni svörtustu stund, sem heimur-
inn hefur nokkurn tíma þekkt.
Ástandið í heiminum fer versnandi. Það mun
verða ófriður um allan heim, hatur milli þjóða,
hungur, plágur og stjórnleysi. Það mun verða
hættulegt. að ganga um strætin.
Þetta Andkrists varmenni mun rísa á sjóndeildar-
hringnum, gnæfa yfir mannkynið og segja: „Fylgið
mér!“ Munið hin spámannlegu orð Opinberunar-
bókarinnar 13, 4—5: „Og þeir tilbáðu drekann
af því að hann hafði gefið dýrinu vald sitt og þeir
tilbáð'u dýrið og sögðu: Hver jafnast við dýrið?“
Aðeins þeir, sem eru huldir blóði Jesú Krists, munu
komast undan þrengingu dómsins.
Já, heimurinn er að verða undirbúinn undir
komu Andkrists. Ekki er samt allt vonlaust af því,
að kristnir menn eru að verða undirbúnir sigur-
göngu inn í himininn. Kristnir menn, sem eru í
sannleika sanntrúaðir, cndurfæddir, þvegnir flekk-
lausir fyrir mátt hlóðs Jesú Krists. Bænir þeirra
eru stöðugt: „Hvað sem öðru líður, þá kom þú
Drottinn Jesús.“
Hvílík blygðun að lesa liinar sönnu kenningar
Biblíunnar, en falla svo fyrir Andkristi, þegar hann
kemur. Hvílík blygðun að vera skolað burtu inn í
eilíft myrkur með straumi svikinna loforða. Fólk
víða í Afríku þekkir ekki þennan sannleika. Það
kynnist ef lil vill aldrei slíkum kenningum. Fólk
í Kína kommúnista, veit ekki það, sem þér vitið
nú. Það fólk mun skolast burtu. Fólkið í Rúss-
landi með sínar guðlausu hugsjónir er hindrað í
að vita þetta og því mun verða skolað burtu. En
þú og ég höfum verið varaðir við. Vér höfum
heyrt og lesið sannleikann í Biblíunni. Mun ísland
bjó'öa Andkrist velkominn? Sérhver yðar svari
fyrir sig.
Eg bið til Guðs, að sannleikurinn í orðum Drott-
ins vors og frelsara Jesú Krists, megi ná djúpt inn
í hjarta yðar. Nái hann að festa þar rælur og hvetja
yður til að verða í öllu sannfærður, kristinn maður.
Hlustið á hina ástríku rödd Jesú, þegar hann kall-
ar: „Eg er vegurinn og sannleikurinn og lífið, eng-
inn kemur til föðurins nema fyrir mig“ (Jóh.,14,6).
Matt. 16, 24—28.
Þá mælti Jesús við lærisveina sína: Vilji einhver
fylgja mér, þá afneiti hann sjálfum sér og taki upp
kross sinn og fylgi mér.
Því að hver, sem vill bjarga lífi sínu mun týna
því, en hver sem týnir lífi sínu mín vegna, hann
mun finna það.
Því að hvað mun það stoða manninn þótt hann
eignist allan heiminn, en fyrirgjöri sálu sinni?
Eða hvaða endurgjald mundi maður gefa fyrir sálu
sína?
Því að manns-sonurinn, mun koma í dýrð föður
síns með englum sínum og þá mun hann gjalda
sérhverjum eftir hreytni lians.
EFTIRMÁLI.
„Sá, sem þetta vottar segir: Já, ég kem skjótt.
Amen. Kom þú Drottinn Jesúm. (Op Jóh. 22,20).
Listdansmœr finnur hamingjuna.
Norikó Mikani var llstdairsmær 1 Tokio. Hún haföi lært
japanskan dans mjög vandasaman og erfiðan. Hún ritaðl:
,,Mig iangaði til að verða alkunn dansmær og iagði pess
vegna hart að mér, en pað megnaði ekki að fylla tómið
i hjarta mínu. Ég varð mjög einmana. Dag nolckurn
barst K.B. smárit til heimilis míns. Er ég hafði lesið
það, lét ég innrita mig i Biblíubréíaskóla til aö kynnast
þessu betur. Meðan námskeiðið stóð yfir, bað ég af hjarta
og fann að ég umbreyttist. Ég er ekki líkamlega hraust
og fátæk af veraldlegum gæðum, en mig langar til að
helga Guði líf mitt. Ég hef yfirgeíið japanska dansltólann
og hef öðlazt nýtt líf. Ég þarínast hjálpar ykkar, biðjið
fyrir mér.“ Ósk hennar var þegar uppíyllt með bréfa-
skiptum og aðstoð frá K.B. skrifstofunni 1 Tokio.
(Úr bænabréf Kristllegar bókmenntadrelfingar).
45