Afturelding - 01.06.1967, Síða 46

Afturelding - 01.06.1967, Síða 46
Minnzt gesla Um miðjan júlí fyrir tveim árum, var það á samkomu einni í Fíiadelfíu í Reykjavík, að við veittum því athygli, að bráðókunnug fjölskylda sat innan við miðjan sal. Það voru hjón með þrjú börn. Næsta sunnudag sátu þau aftur á sama stað. í lok samkomunnar upplýstist það, að þetta voru útlendingar. Nánar sagt norskt fólk. Hjónin kynntu sig: Malvin og lngrid Juvík. Er hér var komiö þá hafði fjölskyldan tekið sér atvinnu á Álafossi. Og Malvin var yfirmaður við spunavélarnar þar. Eftir þetta var fjölskyldan fastir samkomugestir okkar, ekki aðeins þegar um sunnudagssamkomur var að ræða, heldur líka á bænasamkomum og yf- irleitt öllum samkomum safnaðarins. Hjónin voru safnaðarmeðlimir í Hvítasunnusöfn- uði í nálægri byggð við Bergen. Það ber oft við, að trúað fólk frá öðrum löndum dvelji í Reykjavík um lengri eða skemmri tíma, og sæki samkomur í Fíladelfíu. En þessi fjölskylda hafði alveg sér- stöðu meðal þeirra útlendinga, er hingað hafa komið til stuttrar dvalar, og þó var dvölin ekki svo stutt. Og sú sérstaða var á mörgum sviðum. Þau sungu oft á samkomum okkar, ásamt fjór- um ungum norskum stúlkum, er seinna komu til Álafoss, að einhverju leyti fyrir kynningu hjónanna þar á vinnustaðnum. Um ungu stúlkurnar má segja sama og fjölskylduna. Söngur þeirra var gefandi og uppörvaði samkomur okkar mörgum sinnum. Þau vitnuðu einnig. Öll umgengni þeirra hjóna og kynning við okk- ur var svo eðiisgóð og innileg, að undir eins sam- rýmdust þau öllu svo vel, að engu var líkara, en þau hefðu þekkt okkur í mörg ár. Þegar þess er gætt, að það kostaði fjölskylduna kr. 200 að koma á samkomur okkar, er þau fóru með áætlunarbíl, þá sýndu þau óvenjulegan áhuga í samkomusókn sinni, bænasamkomur á laugar- dögum ekki undanskildar. Þau skáru líka upp eins og þau höfðu sáð. Á þeim tveim árum, er þau dvöldu hér, sáu þau báð- ar dætur sínar frelsast og taka biblíulega skírn. Dæturnar voru einkar efnilegar. Þegar fjölskylda þessi fór svo heim til lands síns síðastliðið sumar, lét hún eftir sig almennan söknuð í samfélagi okkar. Kveðjusamkoman var tjáningarstund um það, að svo áberandi autt rúm, er þau létu eftir sig, yrði ekki auðvelt að fylla. Við þökkum þessari góðu fjölskyldu dvöl þeirra á meðal okkar hér. Kynning þeirra öll var sem íimur af norskum skógi. Hafi þau þökk fyrir kom- una og megi Guð biessa þau öll ókomin ævi ár. Á. E. 46

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.