Fróði - 01.09.1911, Page 27

Fróði - 01.09.1911, Page 27
FRÓÐI 23 Smoke Bellew. Eftir Jnck London. (Þýdd). IGINLEGA hét hann Kristófer Bellew, en þegar hann fór á háskóla var hann kalláöur Kris. Bellew. Nán- ustu kunningjar hans kölluöu hann aö eins Kit og seinasta nafniö, sem hann ber í' sögu þessari er: Srnoke. í rauninni var hann Smoke vel efnaöur, en svo komst hann í félag viö Ira einn, O. Hara að nafni, eiganda og ritstjóra að vikublaöinu Billow. Þaö gekk hálf-skrykkjótt, en þegar O. Hara fékk Smoke í félagið, þá fór þaö að ganga dálítið. Bar þar margt til. Smoke var allvel ritfær maöur, og hann tók ekkert kaup fyrir sjálfan sig, og stundum varö hann aö hlaupa undir baggann, þegar peningaskúffan var tóm, og borga prenturunum og vikadrengjunum, og borga húslánið og pappírinn og prentsvertuna. O. Hara þurfti ekki annaö en líta vandræðalega til hans, þegar prentararnir hótuðu aö fara eða rukkararnir koinu aö heimta húsaleiguna eða pappírsverðið. Smoke gat ekki staöist þetta augnaráð vinar síns, hann fór ofan í vasá sinn og borgaði öllum. Hann var því einlægt blankur aö heita mátti. En í rauninni eyddi hann engu í svallið og sukkið af þeirri einföldu ástæöu, aö hann haföi ekki tíma aflögu til þess. Hann hefði að líkindum eytt eins miklu, eöa meiru, heföi hann ekki verið svona önnum kafinn. En þá kom gufuskipið Excelsior frá Alaska meö fréttirnar urn gullfundi í Klondike. Þegar menn heyrðu þetta í San Francisco, þá ætluðu allir aö tryllast. Smoke stekkur undir eins til O. Hara og segir: “Heyröu nú, O. Hara, þetta gullþot varir óefað langa stund — þaö verður eins og áriö '49. Er ekki bezt að ég fari þangað og skrifi um það? Ég skal borga kostnaðinn sjálfur”.

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.