Fróði - 01.09.1911, Blaðsíða 27
FRÓÐI
23
Smoke Bellew.
Eftir Jnck London.
(Þýdd).
IGINLEGA hét hann Kristófer Bellew, en þegar hann
fór á háskóla var hann kalláöur Kris. Bellew. Nán-
ustu kunningjar hans kölluöu hann aö eins Kit og
seinasta nafniö, sem hann ber í' sögu þessari er:
Srnoke.
í rauninni var hann Smoke vel efnaöur, en svo komst hann
í félag viö Ira einn, O. Hara að nafni, eiganda og ritstjóra að
vikublaöinu Billow. Þaö gekk hálf-skrykkjótt, en þegar O.
Hara fékk Smoke í félagið, þá fór þaö að ganga dálítið.
Bar þar margt til. Smoke var allvel ritfær maöur, og
hann tók ekkert kaup fyrir sjálfan sig, og stundum varö hann
aö hlaupa undir baggann, þegar peningaskúffan var tóm, og
borga prenturunum og vikadrengjunum, og borga húslánið og
pappírinn og prentsvertuna. O. Hara þurfti ekki annaö en líta
vandræðalega til hans, þegar prentararnir hótuðu aö fara eða
rukkararnir koinu aö heimta húsaleiguna eða pappírsverðið.
Smoke gat ekki staöist þetta augnaráð vinar síns, hann fór ofan
í vasá sinn og borgaði öllum. Hann var því einlægt blankur aö
heita mátti. En í rauninni eyddi hann engu í svallið og sukkið
af þeirri einföldu ástæöu, aö hann haföi ekki tíma aflögu til þess.
Hann hefði að líkindum eytt eins miklu, eöa meiru, heföi hann
ekki verið svona önnum kafinn.
En þá kom gufuskipið Excelsior frá Alaska meö fréttirnar
urn gullfundi í Klondike. Þegar menn heyrðu þetta í San
Francisco, þá ætluðu allir aö tryllast. Smoke stekkur undir
eins til O. Hara og segir:
“Heyröu nú, O. Hara, þetta gullþot varir óefað langa
stund — þaö verður eins og áriö '49. Er ekki bezt að ég fari
þangað og skrifi um það? Ég skal borga kostnaðinn sjálfur”.