Fróði - 01.09.1911, Qupperneq 32

Fróði - 01.09.1911, Qupperneq 32
28 FRÓÐI mér til þessa”. mælti Kit um leiS og þeir kvöddust. “Ég hlaut að reyna að komast í burtu frá honum O. Hara. eitthvað út í veröldina”. “Hver er hann, þessi O. Hara, er það Japi?” “Nei, hann er Iri, og hann rekur menn áfram sem þræla, þó að hann sé bezti vinur minn. Hann er ritstjóri og eigandi að blaðinu “The Billow”. Hann lætur jafnvel draugana hlaupa”. Þetta kvöld skrifaði Kit Bellew O. Hara miða: “Ég ætla að taka mér nokkurra vikna frítíma”, sagði hann, “þú verður að útvega þér einhvern bullara, til að skrifa söguna sem ég var byrj- aður á. Mér þykir það leitt, vinur, að þurfa að fara, en ég má til að gera það heilsunnar vegna. Ég skal vera tvöfaldur í roð- inu þegar ég kem aftur. II. Kit lentí nú með öðrum á ströndinni við Dyea, og þar var hrúgað upp þúsund punda farangri handa þúsundum manna. Þessu var öílu hlaðið upp á ströndinni í haugum, sem bólar væru. Og svo var farið að smátína úr haugunum. Allan þenna farangur þurfti að bera á mannahryggjum tuttugu og átta mílnr. Áður fyrri hafði verið goldið 8 cent undir pundiö þessar 28 míl- ur, en Indíánar settu það nú upp í 40 cent, og samt höfðu þeir stórum meira að flytja en þeir gátu komist yfir. Var það ljóst, að vetur yrði kominn áður en helfingur farangursins kæmist yfir skarðið. Tetrið Kit var nú æði græningjalegur þarna. Hann var sem fleiri girður belti miklu með skothólkum og stóreflis skamm- bvssu. Sama var að segja um frænda hans. Hann óraði til fyrri daga, þegar allir gengu vopnaðir. En Kit var gjarn á æfintýri. Gullþotið töfraði hann og hann skoðaði líflð frá sjónarmiði listanna. Honum fanst þetta engin alvara. Hann var þarna að taka sér frítíma og ætlaði sér að eins að gægjast yfir skarðið, og snúa svo aftur. Hann gekk nú upp úr fjörunni, á meðan þeir voru að blða eftir því að farangurinn yrði fluttur í land. Stefndi hann leið

x

Fróði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.