Fróði - 01.09.1911, Page 45

Fróði - 01.09.1911, Page 45
FRÓÐI. 4i ir fætur hennar. Hún tók upp myndina og sá, aö það var konu- rnynd forkunnar fögur. Hún gekk meö myndina inn í herbergi sitt og settist viö skrifborðið, reisti myndina upp viö eirlíkneski af vængjaðri sig- urgyðju, krosslagði hendurnar og fór að horfa á þetta fríða and- lit. Smátt og smátt fór hún að minnast rauna sinna og hvað vonir hennar höfðu brugðist og ást hennar að engu komið. Loks- ins hrópaði hún upp: “Þú, — þú eyðilagðir hjá honum trúna og traustið á öllu kvenfólki. Ég hata þig! — ég hata þig!” Hún rak hnefann í hina fögru mynd. Myndin og líkneskið féllu niður af skrifborðinu, og var þá fegurö myndarinnar farin. Þegar hún kom til sjálfrar sín eftir þetta, heyrði hún lækn- irinn segja: “Ég sagði yður að veikin væri illkvnjuð. Þér fóruð of snemma út”. Hún hristi höfuðið. “Nei, það var kvölin gamla. Ég hefi oft fundið til hennar áður — en aldrei eins og nú”. Daginn eftir kom læknir hennar með annan frægan lækni með sér. Þeir skoðuðu hana og niðurstaðan varð sú, aö það þyrfti þegar í stað að skera hana upp. Hún sat kyr og þegjandi. Loks sagði hún: “í næstu viku?” “Innan 48 klukkustunda”, sagði hinn aðkomni læknir. “Það er ómögulegt”, sagði hún fastlega. “Maðurinn minn fór heimleiðis frá San Francisco í gær. Eg verð að sjá hann — áður”. Læknirinn horfði hvasslega á hana og sá engan ótta, held- ur einbeittan vilja á þinu föla andliti hennar. “Þá hafið þér að eins eitt tækifæri af hundr.að að lifa eftir skuröinn”, mælti læknirinn. “Það verður að sitja við jmö, ég vil bíða”. Hún lá í dýrasta herberginu á besta og dýrasta sjúkrahús- inu í borginni. Lestin, sem maður hennar var á, var komin á

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.