Fróði - 01.09.1911, Síða 48
44
FRÓÐI.
Nýjar hugmyndir
um uppeldi barna og fræöslu.
Eftir Addington Bkuce.
Lauslega þýtt.
M. J. Sk.
“LífiS alt er Ieikur’T, sagöí eítt skáldið okkar, en þó aö
hann segði það í gáska og glensi, þá var hann þó nær sannleik-
anuin, en hann sjálfur hafði hugmynd um.
Ef vér förum að hugsa út í það, þá sjáum vér hann svo>
glögglega þenna leik, eða þessa óendanlegu margbreyttu leiki.
Leikurinn er stundum hörkuleikur, stundum grimmúðugur, hat-
ursfullur, stundum þreytandi og leiðinlegur, en þá vana)ega sjálf-
um oss að kenna, en stundum er hann líka fjörugur, skemti-
legur og unaðsfullur. .
Vér hefjum hann, þenna íeik, undir eins og vér förom aö
vitkast, og höldum honum fram alla æfina í gegn. Og hver
sem út í það hugsar, getur séð það, að því léttara sem hann tek-
ur sér lífið, því ánægjuríkara verður þaö honum. t>að bætir
hvorki manninn né lífskjör hans, að sýta eða gráta yfir misför-
um eða glappaskotum. Eina ráðið er að breyta stefnonni og
bæta sig og hefja svo leikinn á nýjum grundvelli.
Ég á ekki við að vér eigum að hætta að vinna, það er langt
frá. Vinnan er eitt atriði og aðalatriðið í leiknum. En vér eig-
um að ger^ hana og alt lífsstarfið eins mikið að leik og vér get-
um. Þá ættu tárin að verða færri í heiminom, og margur mað-
urinn hallaði þá höfðinu rólegri á koddann í seinasta sinni.
En nú hafa margir hinna merkustu vísindamanna á seinustu
tímum farið að halda því fram, aö uppfræðsla öll eigi að vera
leikur einn, og sýna það með óhrekjandi dæmum, að börnin geta
lært margfalt betur og margfalt fljótara með hinni nýju aðferð,
en hinni gömlu.
Menn hafa þegar kastað svipranni og vendinum við uppeldi