Fróði - 01.09.1911, Page 50

Fróði - 01.09.1911, Page 50
46 FRÓÐI. Horis Sidis. Ef til vill hafa menn álitiB þaö markleysu eina. Því enginn hefir á það minst. En það er öðru nær fen svo sé. Drengurinn hans var farinn að tala ein 3 tungumál, þegar hann var 4—5 ára. 9 ára kunni hann ein 5—6, og 11 ára var hann á Harvard háskóla, einhverjum hámentaðasta skóla álfu þessarar, flutti þar jafnvel fyrirlestra fyrir prófessorunum. Sumir ætla að þetta feiknamikla nám, ræni börnin hinum unaðslegu bernskuárum, eða að þetta nám eyðileggi sálarhæfi- leika barnsins, svo það verði andlegur aumingi. Það er lítill efi á því að það mundi gera þetta, ef menn færu að skrúfa barnið til þessa með harðri hendi, héldu því nauðugu við lærdóminn. — En sú aðferð er ekki við höfð, barnið er látið leika sér að lærdómnum. Aftur segja aðrir, að þetta sé ekkert að marka; það séu ein- göngu lærðir menn, sem færir séu um að ala börn sín þannig upp. En þegar til reynslunnar kemur, þá eru það eigi allfáir foreldrar, sem án þess að hafa meiri mentun en vanalega gerist, hefir hepn- ast ágætlega að ala upp börn sín, og hafa bygt á hinum sömu grundvallarreglum og Dr. Sidis. Herra Bruce segir: að öll þau tilfelli, sem hann hefir feng- ið vitneskju um, sanni þetta svo ómótmælanlega. Foreldrar barnanna þvertaka íyrir það, að þetta skemmi heilsu þeirra, og halda því einmitt skýlaust fram, að þessi aðferð styrki þau, bæði andlega og líkamlega. Hún dragi fram alla þá hæfileika sem í börnunum séu, og búi þau miklu betur undir lífið, en hægt var með gömlu uppeldis- og mentunar-aðferðinni. Og það er enn þá meira. Því þeim kemur öllum saman um það, að þetta framúrskarandi nám og námshæfileikar séu ekki verulega til barnanna komnir að erfSum, heldur sé það mest að þakka aöbúd og námsaöferöinni sjálfri. Sem dæmi tekur Bruce Ervin Palda í Cedar Rapid, Iowa. Þegar eldri bróðir hans, Lidmil, var fimm ára gamall, þá gáfu foreldrar hans honum í jólagjöf teninga með stafrófi á, til þess að leika sér að, en móðir hans kendi honum að nefna stafina. Ervin var þá tveggja ára gamall og var vanalega viðstaddur, þegar móðir þeirra var að kenna hinum stafrófið. Hann virtist

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.