Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Side 47
IÐUNN
Myndir af Friðfinni Guðjónssyni, leikara.
205
Maður er nefndur Loftur Guðmundsson. Er það sá
hinn sami sem gerði íslensku kvikmyndina, sem margir
þekkja. Hann er nú tekinn að gera mannamyndir og
sýnir þær í glerskápum hjá Nýja Bíó. Þar rakst ég ný-
lega á myndir af Friðfinni sem voru svo vel gerðar, að
mér þótti sem þær mundu verða hreinustu Iðunnarepli
ef takast mætti að koma þeim út til fólksins.
Koma þær nú hér, þeim báðum, Friðfinni og Lofti til
lofs og dýrðar og lesendum þeim sem njóta kunna, til
skemtunar og fróðleiks.
En hvað merkja þær?
Því til skýringar er best að birta hér frumskjöl máls-
ins, sem eru tvö bréf.
Fylgiskjal /. Bréf frá ritstjóra Iðunnar
til hr. Friðfinns Guðjónssonar:
— — Þegar ég gekk fram hjá myndakassanum hans
Lofts í gær og rak augun í myndirnar af yður og var
búinn að skemta mér sjálfum við að horfa á þær góða
stund, vaknaði hjá mér sú (fagra mundi ég segja ef það
væri ekki um sjálfan mig) hugsun að þessarar sjónar
yrðu fleiri að njóta en þeir, sem ganga um Austurstræti
í Reykjavík. En ég rakst strax á örðugleika. Hér á landi
má aldrei birta mynd af manni eða skrifa um hann,
nema hann sé dáinn eða eitthvað annað álíka merkilegt
hafi komið fyrir hann, svo sem 25 eða 50 ára jubilæum,
silfurbrúðkaup (eða gull-), að hann hafi orðið ráðherra
eða gert eitthvað fyrir sér eða annað slíkt.
Ég leyfi mér því, að snúa mér til yðar sjálfs, þar sem
hver er sjálfum sér næstur, og spyrja yður, hvort ekkert
slíkt hafi komið fyrir yður nýlega, sem geti réttlætt það
að birta af yður þessar ágætu myndir?
Myndirnar sjálfar — svipbrigðin — sýnast óneitanlega