Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Blaðsíða 70
iðunn
Niðursuða í heimahúsum.
Weck er nafn á verksmiðju í Þýskalandi,
sem býr til tæki, sem ætluð eru til niðursuðu
í heimahúsum. Það eru aðallega glös, með
glerloki og gúmmíhring í milli. Þegar matur-
inn (kjötið eða kæfan) er komið í glasið, er
það soðið í þar til gerðum potti, og festist
þá lokið á af sjálfu sjer. Þessi niðursuðutæki
eru sem óðast að ryðja sjer til rúms í heim-
inum, því þótt þau sjeu nokkru dýrari en dósir
í byrjun, þá verða þau mun ódýrari í notkun,
því sömu glösin má nota árum saman. Kostnað-
urinn við að gera við dósir og loka þeim
hverfur úr sögunni og auk þess er það eitt-
hvað hreinlegra að geyma mat í slíkum gler-,
ílátum, en blikkdósum sem hætt er við ryði. I
slíkum glösum má geyma sem nýtt, hvað sem
vera skal, jafnt kjöt og kæfu, sem fisk,
ávaxtamauk og rjóma, hvort heldur er í langan
eða skamman tíma.
Þessi Weck niðursuðuglös voru allmikið
notuð hér í Reykjavík í haust og reyndust
ágætlega. Má því búast við mikilli sölu hér
næsta haust, en ennþá meiri þægindi ættu
slík glös að vera utan Reykjavíkur, ekki síst
til sveita, þar sem niðursuðu verður naumast
komið við á annan hátt.
En athugið, að margskonar niðursuðu glös
eru til, en Weck eru þau langbestu og þau
einu sem hafa rétta lögun fyrir kjöt og kæfu
og fást aðeins í
Liverpool.