Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Page 65

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1925, Page 65
IÐUNN Ritsjá. 223 í þessu efni tel eg „Undir Helgahnúk" skera sig úr. Hún hefir galla — en hún hefir líka ómótmælanlega kosti. Málið er ekki hreint, en það er kjarngott, sérkennilegt og fjölskrúðugt. Stíllinn er hressilegur og skemtilegur. Málið er auðugt að myndum og líkingum og þeim oftar en hitt frumlegum og smellnum, og bera þær vott um góða athugun og eftirtekt. Hugkvæmnin er mikil 03 fjölbreytni í viðburðum sögunnar góð. Höf. lætur sínar skoðanir og tilfinningar ekki skína eins í gegn og oft vill við brenna, 03 einmitt fyrir það njóta viðburðirnir sín sjálfstætt og vel. T. d. er engu eymdarvæli frá höf. blandað inn í frásögnina um slysið, 03 einmitt fyrir það, að stíllinn er kuldalegur og tilfinningalaus á yfirborðinu, verður frásögnin um það svo ægileg. Framan við sjálfa söguna eru tvær sögur sagðar í ágripi, og er það gert til þess að varpa ljósi yfir það, sem gerist í aðal sög- unni, heimilislífið á Stað undir Helgahnúk og innræti Atla 03 Aslaugar. Höf. getur þess í formálanum, að hann hafi í smíðum bók um Atla Kjartansson, en fyrst um sinn muni hún ekki koma út. Er það skaði. Því að í raun og veru vantar þessa bók tilgang, þar til hin kemur. Hún er lýsing, víða góð og skarpleg, en sjálfa uppsker- una af því, sem sáð er, vantar. Atli, aðalpersóna sögunnar, er óráðin gáta. Bókin endar fullkomlega snubbótt, og niðurlagskaflinn er rýrastur af allri bókinni, einmitt vegna þess að hann er ómegn- ugur þess, sem hann þyrfti að gera. Eigi bókin hinsvegar að gefa Iausn á örlögum þeirra prestshjónanna, þá segir hún of mikið, 03 Atli er gerður langt of hugstæður lesendunum til þess að þeir láti sér nægja með að vita örlög gamla fólksins. Halldór er ótvírætt efni í góðan rithöfund. Það er eins 03 maður finni hulda krafta bak við það sem hann skrifar, krafta, sem enn sé langt frá að hann kunni að nota til fullnusfu. M. 7. Guðm. Finnbogason: Stjórnarbót. Bókaversl. ÁrsælsÁrnas. 1924. Allir eru óánægðir méð stjórn og þing og auðveldast allra verka er að lesa þeim textann. Þetta gerir dr. Quðm. Iíka óspart hér. En hann finnur rót alls ills í sjálfu fyrirkomulaginu og stingur upp á öðru nýju. Margt er skynsamlegt í þeim tillögum, en ekki efast eg um að sama sóninn mætti heyra þegar það fyrirkomulag væri búið að prófast í svo sem mannsaldur. Eg held að stjórnar-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.