Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Qupperneq 17
IÐUNN
Kristindómur og stjórnmál.
259
þjóðina, er menn skilja grundvallaratriði lífsskoðunar
Krists, ekki svona aðeins til hátíðabrigðis í kirkjunni endrum
og eins, eða á sóknarnefndafundum. — Þau grundvallar-
atriði, að herra lífsins, hinn eilífi máttugi Guð er faðir
vor allra, konungur vor allra, ráðherra vor allra, — að
vér mennirnir erum bræður og systur og að dýpstu lög
lífsins er kærleikur, samstilling sálnanna á þann veg, að
vér finnum til hver með öðrum og þjáumst hver með
öðrum, — að vér getum ekki verið glaðir og makráðir
ef vér vitum að einhverjum líður illa, ef mörgum líður
illa. Böl mannanna, efnalegt og andlegt, þarf að hvíla
á oss eins og þung byrði, eins og þungur kross, og
veita oss engan frið, fyr en vér höfum gert alt, er í
voru valdi stóð, til að bæta úr því, Bæta úr því þannig,
að orsök þess verði tekin í burtu. Og svo hins vegar að
samstillast öðrum á þá lund, þegar þeir í heilagri hrifn-
ingu og gleði bera fram hjartans málefni sín, helguð af
himinsins náð, — að þeim, vegna þeirrar samúðar og
samstillingar, ykist þróttur og von, kærleikur og trú til
að bera þau fram til sigurs. Og hver vill neita, að ekki
sé nóg um þjáningar meðal mannanna, bæði vegna efna-
legs skorts og andlegrar fátæktar. Og hver vill neita, að
guð geti ekki tendrað heilaga fórnarlund með mönnun-
um til að bæta úr böli þeirra og lyfta þeim til æðri
menningar og andlegrar manndáðar? Sá sem neitaði því
fyrra, væri blindur og sæi því ekki þjóðfélagsmeinin. Sá
sem neitaði því síðara, væri guðsafneitari og andlega
glapsýnn. Hann tryði ekki á andleg og eilíf öfl hins
mikla guðs, tryði því ekki, gæti ekki séð það, að hann
hefir margsinnis tendrað þann áhuga og svo heilaga
fórnarlund með mönnunum, að þeir hafa bætt brek heill-
ar aldar — margra alda— og lyft mannlífi og menn-
ingu, auðvitað á mismunandi hátt og í mismunandi stór-