Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Page 23
IDUNN
Kristindómur og stjórnmál.
265
starfsemi og menningar á kristilegum grundvelli. Með
því gæti hún á ýmsum sviðum skapað fordæmi í
menningarviðleitni þjóðarinnar, og þann feril á íslenska
kirkjan í sögu þjóðarinnar frá upphafi, að ástæðulaust
væri að ætla, að ekki kynni hún að verja fé þjóðinni til
þrifa. Og í rauninni er þessi upphæð, sem hér er farið
fram á, hlægilega lág. I því sambandi er gaman að segja
frá því, að embættislaun prestastéttarinnar úr ríkissjóði
er álíka og kostnaður hans við tvo spítala ríkisins. En
þótt farið sé fram á lága upphæð, mundi kirkjunni þó
verða mikið úr henni, því að hún er áreiðanlega ekki
öllum heillum horfin, hin forna gæfa hennar verndar
hana og varðveitir. — Að sjálfsögðu ákvæði kirkjuþingið
á hvaða hátt fjárveitingunni yrði varið.
Vér erum á milli tveggja eilífða. Vér eigum aðeins
ráð á örskömmu augnabliki í eilífðarinnar ómælandi
geim. Eigum vér að nota það til þess að auka úlfúð
og flokkadrætti og leika á ógöfuga strengi, strengi eigin-
girni og kærleiksleysis? Og er nokkur svo mikill leið-
togi með þessari þjóð, að honum sé ekki þörf á sér
meiri leiðtoga? Trúarbrögðin benda þjóðunum í þroska-
leit þeirra á þá leiðtoga. Kristindómurinn bendir á Krist.
Eiríkur Albertsson.