Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Qupperneq 26
IÐUNN
Gróður jarðar.
[Iðunn hefir áður flutt ritgerð um norska skáldið Knut Hamsun
— einskonar heildaryfirlit yfir bókmentastarfsemi hans. Hér birtist
önnur ritgerð, sem fjallar um eitt af skáldritum hans sérstaklega,
hina miklu og heimsfrægu skáldsögu „Markens Gröde". Var það
einkum fyrir hana að Hamsun hlaut bókmentaverðlaun Nobels
1920. — Rétt þykir að geta um fildrög þessarar ritgerðar. Hún er
skrifuð og flutt sem fyrirlestur við unglingaskólann á Hesti í
Borgarfirði veturinn 1924—25 af einum nemendanna. Hafði hon-
um verið fengið að verkefni að lesa bók Hamsuns og gera síðan
grein fyrir efni hennar. Höfundurinn, Eiríkur Magnússon, er bróð-
ursonur Guðmundar sál. Magnússonar prófessors].
Sérhvert víðfeðmt og öflugt skáldrit er sem krystallinn.
Hann á ótal fleti, skínandi og tindrandi. Eigi er auðið
að sjá þá alla í einu, en með því að velta krystallinum
fyrir sér, sjást þeir að lokum allir, hver með sínum sér-
leik. Og þeir endurspegla hlutina töluvert mismunandi.
Eða öllu heldur: hlutirnir speglast misjafnlega í kryst-
allsflötunum, því hin síkviku og margbreytilegu Ijósbrot
gefa altaf nýjar og nýjar myndir.
Svo er og um skáldrit. Það á ótal fleti, sem eigi er
auðið að ná yfir í einu. En einn eftir annan má leggja
þá undir athygli og innsýni. Og í þessum mörgu flötum
speglast hið mikla ljós — lífið sjálft — á margvíslegan
hátt. I ótal myndum og sjónarhorfum kemur það fram.
Skáldrit, efnisríkt og listrænt, sýnir þessar mörgu lífs-
myndir, eins og krystallinn sýnir myndir af hinum föstu
hlutum.
Um sögu þá, er hér um ræðir, á þetta fyllilega heima.
Hún er fjölstrendi krystallinn, sem sýnir lífið frá mörg-