Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Síða 34
276
Eiríkur Magnússon:
IÐUNN
tíðinni, sem vísar framtíðinni Ieið«. Hér er iim að ræða
þjóðlífsmein nútímans. Eða öllu heldur: hér er lífið kruf-
ið. Hamsun er hinn góði læknir, sem grefur fyrir mein-
semdina og kemur með heilsulyfið. Eigi er auðið að
benda á alla rotblettina, öll kýlin, sem Hamsun grípur
á. Lítum þó á söguna.
í fjalli einu, sem er í Iandareign Isaks, finst kopar.
Nokkrir auðmenn festa kaup í fjallinu og hefja þar
námurekstur í stórum stíl. Alt virðist leika í lyndi. Pen-
ingarnir streyma yfir héraðið, og lífið virðist bjóða fult
fangið hverjum sem hafa vill. Uppi í nýbyggðinni, um-
hverfis Sellanraa, fer líka að koma dálítið kvik á lífið.
Þangað koma nú nýir íbúar. Þar á meðal er Aronsen
kaupmaður. Hann tekur sér land til eignar og býr þar
um sig.
Við munum hvernig Isak kom þarna fyrst. En Aron-
sen lætur um veturinn aka búslóð sinni og byggingar-
efni upp eftir. Hann er hvergi nærri sjálfur, en hefir
fulltrúa til eftirlits og umsjónar. Um vorið lætur hann
byggja og kemur svo með fjölskyldu sína. 011 jarðræktin
er blómgarður við húsið, skrautblómagarður. Aronsen
lifir ekki af afrakstri jarðarinnar, en hann setur verslun
á fót. Ekki skortir viðskiftamennina. Námuverkamenn-
irnir hafa nóga peninga og þá auðvitað kaupa þeir
hlutina án frekari umsvifa. Alt leikur í lyndi um hríð.
Aronsen selur og verkamennirnir kaupa, og niðri í byggð-
inni eru allir hugfangnir og þykir sem nýtt líf sé fyrir
dyrum. En svo kemur reiðarslagið mikla.
Skipun kemur um að hætta starfrækslunni, — hún
beri sig ekki lengur. Koparinn var fluttur til Suður-
Ameríku, en þar komu keppinautar, sem höfðu betur
í kappstreitunni. Og nú er alt hið glæsilega líf, sem
undir hilti, fokið í veður og vind. Verkamennirnir tvístr-