Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 36

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 36
278 Eiríkur Magnússon IÐUNN lénsmaður — ef til vill einkennilegasta persónan, sem kemur fram í sögunni. Geissler hefir orðið. Hann er að tala um námureksturinn, sem þá er nýlega hættur. En sjálfur hefir hann leikið þar hlutverk bak við tjöldin. Hann segir: »Hann (þ. e. verkfræðingurinn, sem stjórnaði námu- greftinum) hefir verið að slæpast hér með menn og hesta, peninga og vélar og margskonar bjástur. Hann vissi ekki annað en að hann starfaði réttu megin. Því meira grjóti, sem hann gæti breytt í peninga, því betra. Hann stendur í þeirri meiningu, að hér sé hann mjög nytsamur. Hann veitir byggðinni atvinnu,- landinu pen- inga. Hrunið nálgast óðum, en hann áttar sig ekki á aðstæðunum. Það eru peningarnir, sem landið þarfnast, og af þeim er yfrið nóg. — — — Að hugsa sér að ætla að gera meðalið að markmiði og setja sig á háan hest yfir því. Þeir eru sjúkir, óðir; þeir hafast ekkert að; þeir þekkja ekki plóginn, þekkja aðeins teningskastið. Nei, gallinn er, að þeir vilja ekki verða lífinu samferða, en vilja hlaupa á undan því. Þeir æða, þeir knýja sig eins og fleygar inn í fylking lífsins. En þá sígur auðvitað fylkingarbrjóstið saman yfir þá, stöðvar þá. Það brakar og brestur; þeir leifa nýrra ráða en komast hvergi. Og síðan — svo kremur lífið þá sundur, hæversklega en vægðarlaust*. Hér er Hamsun búinn að kveða upp dóminn form- lega, þegar öll málskjöl eru framlögð. Það er að segja, þegar lífsstefnan er búin að sýna sig að fullu, búin að sýna hvað hún er og hvert hún leiðir. En hér er Ham- sun ekki að grípa út í loftið. Hann er ekki að dæma upphugsaðar villigötur. Nei, hér er hann að róta við nútímanum, menningarstefnum hans og lífsháttum. Heimsstyrjöldin mikla hefir haft áhrif og eftirköst víð-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.