Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 38

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 38
280 Eiríkur Magnússon IÐUNN starfi sínu er fullvaxni maðurinn að leita hamingjunnar. Og öldungurinn er að leita að hamingju; þótt kraftarnir séu á þrotum og starfið því á enda, er hann samt að leita hennar. I endurminningunum er hann að láta sig dreyma um hamingjuna í lífinu og inn á lendur eilífðar- innar. Með öðrum orðum: alt lífið er hamingjuleit. En hver tími svo að segja á sína sérstöku leið, sinn sérstaka þátt í hamingjuleitinni. Og meira að segja, hver tími hefir sinn sérstaka skilning á því, í hverju gæfuna sé að finna. Nútíminn hefir einnig sinn sérstaka hátt og sér- staka skilning og er það að vonum. Lífinu er nú einu sinni þannig farið, að það krefst hygginda, sem í hag koma. Eitthvað það verður að vera til, sem látið verður í askana, og óefað gengur meiri orka til að afla þess, en til nokkurs annars. En hættan liggur þar í, að ganga eigi of langt, að gefa keisaranum það sem keisarans er( hvorki meira né minna. Lífið er vissulega mikið auðugra og víðfeðmara en svo, að því verði fyrir komið öllu í askinum. Eitthvað, og það meira en lítið, hlýtur þá að liggja ónumið af lendum þess. Og þá mjög líklegt að það séu þau svið, þar sem gæfan á hallir sínar, því enn hefur hún víst aldrei verið í fang tekin úr öskunum, eða á þeim skyldum stöðum. Nú á vorum tímum er þessi leið tíðfarin. Of mikið væri þó að segja, að alt sé miðað við gull, en rík til- hneiging er þó til þess, víðast hvar, að meta gildi hluta og jafnvel hugsjóna við hið praktiska verðmæti. Hin á- kafa og óðfluga leit nútímans eftir hamingjunni er mjög á þessu sviði. í viðskiftalífinu er þessi praktiski mælikvarði við hafð- ur. Viðskifti byggjast nær eingöngu á fjárhagslegum hagnaði — sem mest fé fyrir sem minstan framleiðslu- kostnað. Á þessum einhliða vettvang er skammskrefað

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.