Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Qupperneq 79
IÐUNN
Ritsjá.
321
Ásgeir Magnússon: Vetrarbraut. Reykjavík 1926.
Um stjörnufræði hefir fátt verið ritað á íslensku. Og að þessu
hefir engin handhæg bók verið til, handa skólum og alþýðu manna,
er gæfi undirstöðuatriðin í þeirri fræðigrein. Með þessu riti er
bætt úr þeim skorti.
Bók þessi lætur lítið yf‘r sér, en fljótlega er tekið er að blaða í
henni verður maður þess var, að þar er miklu efni þjappað saman.
Höf. gerir sér far um að segja alt ! sem fæstum orðum; lesandinn
finnur að þar er hverl orð vegið, engri setningu ofaukið. A bak
við þessa bók hlýtur að liggja geisimikil vinna, þótt hún sé ekki
stór.
Höf. er sjálfmentaður, en mun þó manna margfróðastur um
þessi efni hér á landi. Mun hann og snemma hafa tekið ástfóstri
við stjörnufræðina. Hann hefir kynt sér fjölda erlendra rita um
þau efni og er því ekki að efa, að hann í öllu byggir á nýjustu
niðurstöðum vísindanna. Annars er ég ekki fær um að dæma um
vísindaiegt gildi bókarinnar. En hift get ég sagt, að ég hefi lesið
hana mér til mikillar ánægju. Hún er ljóst og skipulega samin,
fróðleg og skemtileg, skrifuð á látlausu en undrafögru máli. Hún
virðist hafa öll skilyrði til að verða vinsæl alþýðubók. Þá er og
ekki líklegt að skólarnir gangi fram hjá henni með öllu, hvorki
alþýðuskólar né æðri skólar. Fátt mun betur fallið til að
lyfta askloki þröngsýni og sérgæðingsháttar af höfði heimaln-
ingsins en það, að gefa honum tækifæri að skygnast út í himin-
geiminn.
Fred Henderson: Rök jafnaðarstefnunnar. Vngvi Jóhannes-
son íslenzkaði. Rvík 1926.
Sem ákveðin pólitísk hreyfing er jafnaðarstefnan ekki svo ýkja
gömul. En vöxtur hennar og viðgangur hefir verið hraður og
mikill, ekki síst á seinni árum. Engin stjórnmálastefna hefir valdið
annari eins ólgu í þjóðfélögunum, um enga stefnu hefir staðið
jafnmikill styr eins og hana. A fáum áratugum hefir hún eflst og
magnast svo undrum sætir. Til að byrja með óljós draumsjón ein-
stakra manna, sem í almenningsálitinu stóðu eitthvað ulanhalt við
veruleikann og sem enginn tók alvarlega. Síðan vopn, er óánægðir
æsingamenn notuðu til að afvegaleiða sauðheimskan almúgann með,
og sem helst vakti athlægi virðulegra oddborgara, eða í hæsta Iagi
gremju. Og nú ákveðin og öflug stjórnmálastefna, vel undirbygð