Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Page 80
322
Ritsjá.
IÐUNN
að rökum — stefna, er náð hefir svo föstum tökum á hugum
manna, að í mörgum löndum álfu vorrar hefir hún mest fylgi af
öllum stjórnmálastefnum.
Þessar staðreyndir gætu verið — og eru vafalaust — alvarlegt
íhugunarefni mörgum manni, jafnvel þótt hann í hjarta sínu kynni
að vera stefnunni andvígur. Væri ekki ósennilegt að á hann rynnu
tvær grímur um það, hvort skilningi hans á táknum tímanna væri
ekki eitthvað áfátt, hvort ekki einmitt þessi stefna væri það, sem
tíminn krefði og ör þróunarinnar beindist að. Og myndi þá ekki
óviturlegt og árangurslaust að vera að streitast á móti? Fer ekki
þróunin sinna ferða, hvað sem við segjum eða gerum?
Spakur maður, sem enn er á lífi, hefir líkt þróun tímans við
risavaxið dýr, sem mennirnir eru að reyna að stjórna. Framgjarni
umbótamaðurinn situr á hálsi þess, lemur fófastokkinn og æpir til
þess að hvetja dýrið áfram. Afturhaldsmaðurinn hangir i halanum
og streitist við af öllum mætti til þess að draga úr ferðinni. Báðir
ímynda sér að það séu þeir, sem förinni stjórna. En dýrið heldur
áfram leiðar sinnar eftir sínu höfði, tekur naumast eftir þessum
flugum, sem eru að ónáða það og Iætur þær á engan hátt stjórna
ferð sinni.
En hvað sem er um það, — frá sjónarmiði flugnanna (þ. e.
mannanna) eru það þær, sem ráða ferðinni. Svo hlýtur það að
vera, og eftir því verða mennirnir að haga sér. Og jafnaðarstefn-
una, sem knýr æ fastar á dyrnar, jafnvel hér á útskaga veraldar,
er ekki unt að leiða hjá sér lengur. Allir þeir, sem teljast vilja
meðal vakandi og hugsandi manna, verða að taka afstöðu til hennar,
með eða móti. En skilyrðið til þess að geta það er, að kynna
sér þessa stéfnu og rök þau, er forvígismenn hennar hafa fram
að bera.
Því er ástæða til að fagna því, að bók eins og þessi kemur út
á íslensku. Og það því fremur sem hún lyftir merki jafnaðarstefn-
unnar hátt og djarflega. Hún er í fyrsta lagi einkar Ijós og skipu-
leg greinargerð fyrir grundvallarkenningum jafnaðarstefnunnar. í
öðru lagi er hún hörð og óvæg ádeila á núverandi þjóðskipulag.
Jafnframt þessu eru þar teknar til meðferðar ýmsar helstu mót-
bárur, sem fram hafa komið gegn þessari stefnu. Verður ekki
annað sagt en að það sé gert með óvenjulegum skarpleik og
rökfimi.
Bókin er að öllu hin læsilegasta. Ur hinum mikla sæg erlendra