Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 58
368
Höfundur Robinsons Crusoes.
iðunn
(Hinn sann-borni Englendingur), 1701. Er það hvöss
ádeila á andstæðinga Vilhjálms konungs þriöja, sem þá
réð ríkjum á Englandi, en þeir fundu honum það til
foráttu, að hann var erlendur að uppruna, Niðurlend-
ingur. Fanst Defoe það sitja illa á enskum mönnuinn
sem sjálfir væru hinir mestu kynblendingar, að amast
við útlendingum. Kvæði petta er eigi neitt meistara-
verk, en ágætir sprettir eru í pví, og pað hitti markið.
Að sögn höfundarins seldust áttatíu púsund af pví á
strætum Lundúnaborgar, og pað aflaði honum konungs-
hylli í svdp.
1 sambandi við umrætt kvæði Defoes, sem er árás á
pjóðarhroka og pröngsýni, má geta pess, aö hann virð-
ist hafa átt hugarfar hins sanna heimsborgara í alíríkum
mæli. Hann er umburðarlyndur og harla sanngjarn í
dómum sínum um útlendinga, nema um Portúgalsmenn;
peir eiga ekki upp á háborðið hjá honum, hvað sem
veldur. Umburðarlyndi hans ríær einnig til andstæðinga
hans í skoðunum.
Defoe ritaði firnin öll af flugritum um ýms efni: —•
trúmál, stjórnmál og ekki sízt siðferðismálin. Hann
ræðst ómjúklega á siðleysi, blót og ragn og drykkju-
skap samtíðar sinnar. En honum fór sem mörgum öðr-
um sannleiks-segjendum að fornu og nýju; hann hlaut
vanþakklæti og árásir að launum fyrir umbóta-áhugann.
Flest flugrit Defoes voru dægurflugur og eru sokkin
í gleymsku. Eitt peirra er samt 'löngu víðfrægt orðið,
hið bráðsnjalla háðrit hans: The Shortest Wcnj With
Dissenters (Greiðasta meðferð á sértrúarmönnum), 1702.
Eins og bent hefir verið á, pá var höfundurinn sértrúar-
maður, en hér talar hann í anda hinna römmustu há-
kirkjumanna og hvetur til að uppræta alla sértrúar-
rnenn. í raun og veru er petta hið bitrasta háð upp u