Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 65
IÐUNN
Heilabrot.
375
er-pað, að hann lætur erkibófa sína jafnan gera iðrun.
og yfirbót í sögulok. Hann ritaði um þá öðrum til
varnaðar. En látum siðfræðarann Defoe, sem vissuiega
vann margt til þarfa, hvíla í fiiði.
Ritsnillingurinn Defoe lifir í Robinson Crusoe. Og það
er hann, sem menn minnast með þakkarhug víða um
heim á þessu ári.
Heilabrot.
1 vetrarmyrkri vorsins sól vér þráum.
í vorsins geislum rökkurs töfra skiljum.
Hlotin gæði harla sjaldan viljum.
Hæsta marki lífs vér aldrei náum.
Sumir trúa’ á fylling fyrirheita.
Flestum verður örðug leið án trúar.
Aðrir segja: — Rannsókn raunsæ brúar
rokýfð höf, sem fararleyfis neita.
Oft í hilling hafs við brún vér eygjum
hallir þær, sem ráðning draumsins geyma.
Við lukta múra lífsins æðri heima
liggur þekking vor í dauðateygjum.
Enginn hefir enn þá séð þá lykla,
er opni hurðir þær, sem tálmun valda.
Sólin skín á sögu þúsund alda;
sólin, — hún er skuggi ljóssins mikla.
Bödvar frá HnífsdaL