Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 70

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 70
380 Trúarbrögð og kristindóinur. iðunn til sálræn lögmál, sem virðast vera hin söniu hjá öllum mannlegum verum, líkt og náttúrulögin eru gildandi hvar sem er í hinni ytri náttúru. Maðurinn er fyrst og fremst maður, hvar sem hann býr og hver sem kjör hans eru. i öðru lagi er hann félagsvera, svo að ekki verður komist hjá gagnkvæmum áhrifum milli einstak- linganna. Þjóðar- og lands-venjur, flokksbönd, sameig- iniegt uppeldi og hagsmunir eða kynni uið einn og hinn sama sterkan persónuleika — alt þetta veldur pví, að hugsun manna og hneigðir hniga mikið til í sömiu megin-áttir og pær leiðir, sem trúarleg hrifning brýtui' sér fram, veröa þær sömu hjá stórum hópum i senn, þrátt fyrir alla fjölbreytnina. Það er þetta, sem sikapað hefdr trúarbragðaflokka og kirkjufélög. Það iiggur í hlutarins eðli, að hugsun, tilbeiðsia og hrifning hlýtur að eiga sér einhver ytri form í orðum og athöfnum, en þau geta engan veginn orðið hin sömu hjá öllum einstaklingum eða á öllum tímum. Þó er það algengt í trúarbragðasögunni, að leitast sé við að- skorða religion manna í vissar stellingar og inarka hrifninni ákveðna línu, sem hvergi megi víkja frá. Pá kemur kreddutrúin fram á sjónarsviðið, þessi erkifjandi frjálsrar hugsunar og lifandi trúar. Það er hún ein, sem séra G. B. heiðrar með nafninu trúarbrögð, þvert ofhn í málvenjuna og, að því er mér virðist, í andstöðu við rétta hugsun. Þessu til skýringar er hentugt að virða fyrir sér annan ríkan þátt manneðlisins, sem er ásta- lífið. Lifandi hjónaást getur steinrunnið og orðið — ef ég má komast svo að orði — bæði „doginatisk" og „orþodoks". Þá er hrifningin dvinuð og frjó hugsun að mestu horfin, en maður og kona hafa höggvið sér til ákveðna mynd af æruverðugri hjónasambúð með ytri siðareglum og hnitmiðuðu hátterni við öll helztu tæki-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.