Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 86
iðunn
Bækur.
Giiömundur Kamban: S k d l h o 11 II-
M ala do mestica.
Og svo kom þá síðari hluti skáldsögunnar um jómfrú
Ragnheiði, og höf. greiðir nú þá örlagaþræði til fullnustu,
er hann hóf að rekja í hiíini fyrri bók. „Heimilisböl“ er
heitið, sem liann velur bók sinni, og er það réttnefni.
Hún fjallar að langmestum hluta um böl það, er meistari
Brynjólfur bíður, er eyðast taka draumar hans um frama
barna sinna. Svo er að sjá, sem höf. taki þann kost ráðins
hugar, að láta allar persónur bókarinnar þjóna undir
þann tilgang.
Um fyrri hluta þessa rits hefir verið alhnikið ritað og
mjög á ýmsa vegu. Fulltrúum yfirstéttarlistar, sem ekki
þykir matur í neinu nema kynórum og tilfinningavímu tig-
inborinna manna og kvenna, þótti það „fagurt og djúphugs-
að skáldverk" (Kr. Alb. í Mgbl.). Aðrir hafa fundið það til
foráttu bókinni, að ekki væri nógu trúlega ritað að máli og
anda þeirrar aldar, er bókin greinir frá, og óhrjálegar
farið með ástamök Daða og Ragnheiðar en ætla mætti um
svo fróma öld (dr. Guðbr. Jónsson í Vísi). Ber að virða
slíka amasemi, með því að hún er einatt ávöxtur fróm-
lyndis og bljúgleika, sem illa þolir skvaldursamt orðbragð
um hin innilegri mök manns og konu. En þetta skiftir í
sjálfu sér engu máli fyrir aðra en þá, sem skaplyndi og
smekk hafa til þess að jagast um slíkt. Höf. þessara lína
fann það bókinni til foráttu, að ekki væri svo með málið
farið, að það ýtti við áhuga nútímamanna, m. ö. o„ að höf.
liefði ekki tekist að skapa örlög, er réttlætti bókargerðina.
En þess er skylt að geta, að frásögnin rís öll í síðara
hlutanum. Ragnheiður færist í aukana, er sterkari í van-
mætti sínum og umkomuleysi en áður í ást sinni og
hamingju. Og sama verður reyndar uppi á teningnum um
flestar persónur þær, er aftur getur úr fyrra hluta, að
þær skýrast, verða skiljanlegri og því geðfeldari. Nema
Daði; hann er i rauninni „statisti" og hefir alt af verið.