Kirkjuritið - 01.07.1937, Blaðsíða 13
Kirkjuritið.
VITA.
ÆFIÁGRIP BJARNA JÓNSSONAR.
LESIÐ UPP, ER HANN, 4. JÚLÍ 1937, VAR VÍGÐUR
VÍGSLUBISKUP í HINU FORNA
SKÁLHOLTSBISKUPSDÆMI.
Ég', Bjarni Jónsson, er fæddur í Revkjavík 21. okt.
1881, og skírður 6. nóv. sama ár af séra Hallgrími
Sveinssyni, þá dómkirkjupresti.
Fæddist ég i Mýrarholti, sem var býli við Bakkastíg
liér i Vesturbænum. Ólsl ég þar upp og var þar fram
yfir tvítugt eða til þess tíma, er ég fór af landi hurt lil
náms að loknu stúdentsprófi.
Faðir minn, sem var tómthúsmaður, var ættaður úr
Kjós, sonur Odds Loftssonar Guðmundssonar og Krist-
ínar Þorsteinsdóttur. Var hann alinn upp í Laxárnesi.
Móðir mín, Ólöf, var fædd hér í bæ, dóttir Hafliða
Nikulássonar Erlendssonar, og áttu forfeður hennar i
föðurætt heima hér í Reykjavík. En i móðurætt var hún
af Engeyjarætt. Var Guðfinna móðuramma mín dóttir
Péturs Guðmundssonar i Engey.
Foreldrar mínir veiltu mér hið bezta uppeldi og minn-
ist ég þeirra og æskuheimilis míns með miklu þakk-
læti. Af börnum þeirra komust 5 til fullorðinsára, og
erum við nú 4 systkinin á lífi og eigum öll heima hér
í hæ.
Árið 1890 byrjaði ég nám mitt við Barnaskóla
Rejrkjavíkur, en veturinn 1895—90 lærði ég það, er
krafist var til inntökuprófs í lærða skólann, en svo var
skólinn þá nefndur. Var það fyrir hvatning, leiðbein-
ingar og fræðslu góðra manna, að sú ákvörðun var tek-