Kirkjuritið - 01.07.1937, Blaðsíða 30
268
Asmundur Guðmundsson:
Kirkjuritið.
söfn hægt og hægt í söfnuðunum. Þegar svo söfnuður
sendi frá sér trúboða, er ekkert líklegra en að honum
yrði fengið slíkt safn í hendur til sluðnings starfi hans.
í Mark. eru ýmsir ræðukaflar, og mest alt sameigin-
legt efni Matt. og Lúk. er ræður. Svarar það til þeirrai'
staðreyndar i frumkristninni, að brýn nauðsvn hvaltí
liana skjótt lil þess að safna orðum Jesú. Höf. Mark.
hefir þekt slík söfn (shr. t. d. 3, 23; 4, 2; 6, 34; 12,38),
þótl hann gangi nokkuð fram hjá þeim og' láti sér nægja
að vísa til þeirra. Trúboðarnir hafa stuðst við þau í
starfi sínu og fesl í minni eða letur. Páll postuli vitnar
Jjráfaldlega til orða Krists, sem kunna að liafa verið í
slíkum söfnum (shr. Róm. 12, 14; 1. Ivor. 7, 10; 9, 14;
11, 23 nn; 1. Þess. 4, 16 n.). Svo gjöra einnig höf. Jak.
(5, 12), 1. Pét. (4, 8) og Didake (Kenning liinna tólf post-
ula*) (1, 3nn). Og í 1. Tím. 6, 3 er lögð áherzla á orð
drottins Jesú Krists með þeim hætti, að ætla má, að átt
sé við safn af þeim.
Þá hafa l'undist smásöfn af orðum Jesú. Þannig fundu
enskir vísindamenn fvrir 40 árum slikl safn í sandin-
um i Behnesa (Oxyrhynchus) á Egiptalandi. Það er
ritað á sefpappírshlað um miðja 2. öld. Þar er raðað
saman orðum, sem Jesús hefir sagl við ýms tækifæri.
Á undan hverri málsgrein (þær eru 7—8) stendur jafn-
an: Jesús segir. Sumar setningarnar minna mjög á orð
Jesú í Nýja testamentinu, einkum í Fjallræðunni, en
aðrar eru nýjar. T. d. þessar: „Reistu steininn og þú
munt finna mig þar, kljúfðu viðinn, og eg er þar".
Jesús segir: Eg kom í heiminn og birtist þeim í holdi
og fann alla drukna, og engan fann eg þyrstan meðal
jieirra, og sál mín líður vegna sona mannanna, því
að þeir eru blindir á hjarta“. Sömu vísindamenn fundu
á sama stað árið 1904 safn af orðum Jesú, 5 máls-
greinar með stuttum inngangi.
*) Kristilegt rit frá siðasta áratugi 1. aldar eða fyrri hluta 2.