Kirkjuritið - 01.07.1937, Blaðsíða 57
Kirkjuritið.
Erlendar fréttir.
295
kaþólska kirkjan fá þyngsta höggið síðan á Lúters dögum. Mörg
blöð hafa flutt kaþólsku kirkjunni alvarlegar áminningar og
lýst því yfir, að rikið muni ekki trúa henni fyrir uppeldi æsku-
lýðsins, nema því aðeins, að hún haldi uppi reglu og aga i
klaustrunum. En það eru foreldrar barna í klaustrunum, sem
l'Iestar ákærur hafa sent.
Svo virtist í fyrstu, sem kaþólsku kirkjustjórninni myndi tak-
ast að þagga niður að mestu ]>essi hneykslismál, refsa sjálf
sökudólgunum og gjöra hreint fyrir sinum dyrum. En það
hefir ekki orðið. Þeir seku hafa aðeins verið fluttir i önnur
klaustur eða úr landi. Ummæli Mundelains kardínála í Chicago
hafa einnig æst eldinn, en hann sagði, að stjórnin á Þýzkalandi
hefði vakið þessi málaferli til þess að ná sér niðri á kaþólsku
kirkjunni og vinna henni tjón.
Slíkum ásökunum vildi stjórnin ekki taka þegjandi. Göbbels
ráðherra flutti erindi gegn kaþólsku kirkjunni fyrir 20000 manns
í Berlín, ofsafengið í meira lagi:
„Ég hefi verið neyddur til þess“, sagði hann m. a., ,,að fara í
gegnum dálítinn hluta af málsskjölum þeim, sem fyrir liggja,
og ég get lýst þvi yfir, að blöðin hafa ekki gefið nema lítil-
fjörlegan forsmekk að andstygðinni“.
Því næst tók hann nokkur dæmi, skýrði frá undanfærslu
hiskupsins i Mainz og að sannast hefði á biskupinn í Trier,
að hann hefði skýrt rangt frá fyrir rétti.
,,Ég tala“, mælti hann að lokum, „í nafni þúsunda virðulegra
og góðra presta, sem hafa skrifað mér, harmþrungnir yfir hnign-
un kirkjunnar. Ég vona, að frá þeim megi koma endurfæðing
kirkjunnar áður en það er um seinaiT'.
Það er auðvitað enn ókleift með öllu fyrir utankomandi
menn að fullyrða neitt um það, hvort lýsing Göbbels er sönn
eða ekki. Hann er ekki hlutlaus í þessu máli. En það dylst ekki,
að kaþólska kirkjan er í mikilli hættu stödd. Hér er stungið á
verstu og sárustu kaunum liennar. Og megni hún ekki sjálf að
skera meinsemdina burt, hvað sem það kostar og hverir, sem
eiga i hlut, þá verður hún að þola læknisaðgerðina af annara
höndum, hversu ómjúkar sem þær kunna að verða.
Frá Rússlandi.
í maíhefti Kirkjuritsins var sagt frá því, að kristið trúarlíf
væri að glæðast meir og meir í Rússlandi. En nú síðustu vik-
urnar hafa rússnesku blöðin hafið hehför gegn því. Þau halda
því fram, að „stjórnarfyrirkomulag Stalins“, sem svo er kallað,
gefi kirkjunni of frjálsar hendur og hún neyti þess í baráttunni