Kirkjuritið - 01.07.1937, Side 14

Kirkjuritið - 01.07.1937, Side 14
252 Bjarni Jónsson: Kirkjuritið. in, og geymi ég ávalt nöfn þeirra í þakklátum liuga. I júní 189(5 lauk ég inntökuprófi, en nokkurum vikum áður var ég fermdur liér i kirkjunni af séra Jólianni Þorkelssyni dómkirkjupresti. Áður en ég byrjaði nám í Latínuskólanum var ég á sumrin við smalamensku og' heyvinnu í sveil, mörg sumur á sama hænum, Þúfu í Ölfusi. En eflir fermingu var ég þingsveinn annaðhvort sumar, en við saltfisk- vinnu þau sumur, er þing var ekki háð. 14. júlí 1898 var ég sem oftar í saltfiskvinnu með föður mínum. En þann dag varð liann hráðkvaddur við vinnu sína. Leit nú út fyrir, að námsbraut mín væri á enda, því að móðir mín var fátæk ekkja. En samt fór svo, að ég' liéll áfram námi. Kendi ég börnum daglega, er ég kom heini úr skólanum og hafði atvinnu á sumr- in. Mikil lijálp var mér og móður minni veitt með náms- styrk þeim, er ég varð aðnjótandi í skólanum. Höfðum við aldrei haft svo mikla peninga i einu milli handa. Stúdent varð ég 30. júní 1902. A skólaárum mínum var stofnað hér í hæ Kristilegt félag ungra manna. Gerðist ég meðlimur þar, og hæði þar og annarsstaðar varð ég fyrir þeim trúaráhrifum, sem vöktu hjá mér löngun til guðfræðináms, og sú löngun mætti einnig góðum skilningi hjá móður minni. Langaði mig til jiess að lesa guðfræði í Kaupmannahöfn, og' af því að ég var óvanur þvi að reikna með háum tölum, fanst mér það mundi vera auðvelt að lifa af Garðstyrknum, sem ís- lenzkir stúdentar j)á nutu i Kaupmannahöfn. Sigldi ég þá um haustið til Kaupmannahafnar. Bjó ég á Garði (Begensen), og eignaðist marga góða vini á þeim árum. Hefir sú vinátta lialdist til jæssa. Að loknu fyrsta stúdentsari lauk ég heimspekiprófi og hebresku- prófi. Þegar 3 ár voru liðin af námslímanum, sá ég mitt óvænna, j)ví að Garðstyrkur var aðeins veittur í 4 ár. Sá ég, að ég mundi komast í hin mestu fjárhagsvand-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.