Kirkjuritið - 01.04.1939, Blaðsíða 3
Kirkjuritið.
Trúin á upprisu Krists.
Eftir Nathan Söderblom erkibiskup.
Upprisa Krists er staðreynd í veraldarsög-unni.
Við hvað er átt með orðunum: „Söguleg staðreynd“?
Menn hafa fæðst og dáið. Þeir hafa etið og drukkið, unn-
ið og hvílst, og margt ber við á hverri stund og hverjum
úegi á þessari jörð. En til þess að atburður teljist söguleg
staðreynd, verður hann að hafa haft þau áhrif á g'ang
sögunnar, að um muni. Það er ekki atburðurinn einn úl
af fyrir sig, beldur bæði hann og áhrif hans svo langt
°g lengra en augað eygir, sem valda því, að hann getur
orðið söguleg staðreynd. Þess vegna liafa fleiri en einn
&f mestu sagnfræðingum vorra tíma lýst yfir hvoru-
tveggja: „Upprisa Krists er staðreynd í veraldarsögunni,“
°g „Engin staðreynd i veraldarsögunni er áhrifameiri og
þar af leiðandi öruggari en upprisa Krists.“ Þessi sögu-
skoðun getur ekki dulist neinum þeim, er virðir fyrir sér
atburðina eins og þeir gerðust. Lærimeistari Gyðinga frá
Nazaret er dæmdur, og deyddur við kvöl og smán fyrir
Uppreisn og guðlasl. Lærisveinar lians og aðdáendur tvístr-
ast eins og sáð fyrir vindi. Þeir líta svo á, að sér hafi
glapnast sýn. Þeir eru úrræðalausir. 1 stað þess, að Messías
kæmi fram eins og frelsari og velgerðamaður þjóðar sinn-
ar í mætti og dýrð, þá var nafn hans máð út úr annálum
þjóðar hans. Þess var aðeins að leita í skýrslum um
sakamál. Hann var ekki sá eini, seixi gjört hafði tilkall
til þess að vera Messías og lausnari. 1 Nýja testamentinu
er-u nefndir uppreisnarmenn: Þevdas, sem 400 manna
Uokkur fylgdi, og Júdas frá Galíleu, er fékk fólk til fylgis
vxð sig á dögum skrásetningarinnar. Barrabas bafði einnig
valdið upphlaupi.