Kirkjuritið - 01.04.1939, Blaðsíða 25
Kirkjuritið.
V. V. Sn.: Sjóniannasálmur.
159
Biðjum þess, að boðskajtur páskanna, að boðskapur
Jesú Krists nái til mannanna, svo að trúin rísi upp og
haldi heilagan páskadag.
Tignum Jesúm Ivrist, seni dáinn er, og nieira en það,
er upprisinn frá dauðum.
Jesús dó. Þar endar hjá mörgum saga lians. En vér,
sem trúum á hann, segjum með postulanum: Meira en
það, er upprisinn frá dauðum".
Jesús er upprisinn. í samfélagi við bann heldur trú
vor upprisuhátíð. Þessvegna hljótum vér að eiga gleði-
lega páska. Amen.
Sjómannasálmur.
Er fjallháir brotsjóar falla með gný,
er fullrótt þeim einum, sem treyst geta því,
að Guð sé þeim næstur, er greinir ei lönd,
liann greiði úr vanda, hann rétti þeim liönd.
Ef sál vorri’ er órótt, ef angistin slær,
þú athvarf ert nauðstöddnm, frelsari kær.
Þú líknar, þú bjargar, þú leysir öll bönd,
þú lægir hvern hafsjó, þú réttir oss hönd.
Hvað getnr oss sakað með Guði á leið?
Vér gæzku hans treystum i lífi og deyð.
Að óveðra baki sjást ljómandi lönd, —
Guð leiðir oss þangað, Guð réttir oss hönd.
Þótt vantrúin efist, ég aldregi vil
samt efandi spyrja, livort drottinn sé til.
Ég veit, það er satt — eins og ljós skín um lönd.
Ég lofa þig, Guð minn, og sæl er mín önd!
Vald. V. Snævarr.