Kirkjuritið - 01.04.1939, Síða 4

Kirkjuritið - 01.04.1939, Síða 4
138 Nathan Söderblom: ApríJ. í söguheimildum Gyðinga má einnig finna fleiri slíka. Þeir eru nú gleymdir. En saga Jesú er ekki á enda. Úr mistri aldanna koma þeir aftur fram mennirnir, sem höfðu horfið af sjónarsviðinu viti sínu fjær af ótta. Nú eru þeir ekki framar liugdeigir né skilningsdaufir, læri- sveinar meistarans. Nú eru þeir stríðsmenn lians, lieilir og hugsterkir. Þeir boða sakamanninn krossfesta. Þeir játa trú sína á liann. Þeir treysta sigri lians. Minningin um hann er þrungin fögnuði. Þeir eru albúnir þess að fara að gjöra allar þjóðir að lærisveinum hans. Þeir hefj- ast lianda og verður undursamlega mikið ágengt. Starfi þeirra liefir síðan verið lialdið áfram og það eflst með liðandi árum og öldum. Sagan um líf Krists og kvöl mun verða öllu mannkyni kunn á komandi tímum, svo langt sem mannleg augu geta liorft. Hvað olli þessari breytingu? Sá, sem sér liana en hirðir ekki neitt um orsök hennar, vill bvorki skýra söguna né skilja. Á svarinu leikur enginn efi. Ef vér spyrjum læri- sveinana, þá segja þeir með Pétri: „Þér líflétuð liöfðingja lífsins, en Guð uppvakti hann frá dauðum, og að því er- um vér vottar“ (Post. 3,15). Eitt skarð varð í flokk liinna tólf. Matthías varð í stað Júdasar þjónn og postuli með hinum. Og í hverju var postulalilutverkið fólgið? Pétur lýsir því svo fyrir 120 áhorfendum: „Það hæfir, að ein- hver þeirra manna, sem með oss liafa verið allar stundir, meðan drottinn Jesús gekk inn og út vor á meðal, síðan er skírn Jóhannesar hófst til þess dags, er liann var upp numinn frá oss, verði vottur upprisu lians ásamt oss“ (Post. 1,21—22). Postuli er þá vitni um upprisu Iírists. Frammi fyrir ráðinu báru einnig postularnir með mikl- um krafti vilni um hann: „Guð feðra vorra hefir uppvakið Jesúm, sem þér hengduð upp á tré og tókuð af lífi; þenn- an liefir Guð upphafið að foringja og frelsara með hægi'J hendi sinni til að veita Israel afturhvarf og syndafyrir- gefningu“ (Post. 5, 30—31). Stefán varð svo fyrstur til að staðfesta þennan vitnisburð með blóði sínu.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.