Kirkjuritið - 01.04.1939, Page 15

Kirkjuritið - 01.04.1939, Page 15
Kirkjuritið. Kristur og börnin. „Vissuð þið ekki, að mér ber að vera í því, sem míns föður er“? (Lúk. 2, 49 b.) Enn í dag' hljóma þessi orð Jesú til vor og minna oss á skylduna við skapara vorn °g föður, þá helgu skyldu að vilja koma þar saman, sem farið er með Guðs orð, lionum þakkað, hann tilheðinn °g vegsamaður fyrir gnóttir gjafa og' gæzku alla. Þessi °rð ná bæði til yngri og eldri, þau ná til vor allra, sem viljum láta kalla oss kristna. En sérstaklega er þó þýð- ingarmikið að benda hinum ungu á gildi þeirra. Ungur var Jesús, þegar hann mælti þau, og ungum sem gömlum munu þau ávalt vera til leiðbeiningar og hvatningar. „Vísa hinum unga veginn, er liann skal ganga,“ var sagt til forna, °g þessarar hóflegu áminningar er þörf enn í dag. Það er fylsta þörf á þvi, að benda hinum ungu á gildi og þýð- ingu orða Jesú, laða liugi þeirra að fagnaðarerindinu og leiða þá til hans, sem breiddi út faðminn á móti þeim °g sagði: Komið — komið til mín. Betur en nokkur annar skildi hann, hversu mikils virði það er fyrir barnið og æsku- nianninn að verða fyrir álirifum hins góða og láta leið- beinast af orðum hans og anda. Þess vegna hvatti liann einnig mæður og feður að koma með börnin til sín, svo nð þau gætu orðið fyrir blessunarrikum áhrifum frá lion- um. Það er því heilög skylda þeirra liinna mörgu, er börn eiga, og allra þeirra, er fást við uppeldi barna, að leggja riha áherzlu á hið trúarlega og siðferðilega uppeldi þeirra. Vér vitum af reynslunni, að nú er los á ýmsu í þessum efnum, los, sem hefir hvergi annað í för með sér en ó- heillavænleg áhrif og sálartjón fyrir yngri sem eldri. Sannindi trúarinnar eru véfengd, ófullkomnu siðgæði

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.