Kirkjuritið - 01.04.1939, Síða 16

Kirkjuritið - 01.04.1939, Síða 16
150 Valgeir Helgason: Apríl. kveðið lol', og nauðsynlegum lieilbrigðisreglum ekki hlýtt. Við þessu ber að vara og sporna. Vér verðum að vera á verði gagnvart ábyrgðarleysinu og óráðshjalinu, sem fer í vöxt, varast að láta hina ungu verða fyrir áhrifum þess, en kappkosta að móta hugi þeirra eftir anda og stefnu fagnaðarerindis Jesú. Að þessu marki ber að vinna, en því verður naumast náð nema með góðri samvinnu og einingu þeirra þriggja aðilja, er við uppeldið fást, nefni- lega heimila, skóia og kirkju. Faðir og móðir eða þeir, sem taka að sér ldutverk þeirra, leggja að jafnaði grunn uppeldisins, og gefur að skilja, hversu mikilsvert það er fyrir barnið, að þar sé rétt að farið. Farsæld þess fer að sjálfsögðu mjög mikið eftir því. Næst kemur skólinn með sinn skerf, sem einnig befir mjög mikið að segja að takist vel, og svo loks kirkjan. Ef allir þessir aðiljar gera skyldu sína, þá má vænta góðs árangurs og þá ættu svo nefnd vandræðabörn og auðnuleysingjar að liverfa úr sögunni. Og þá væri mikill sigur unninn fyrir þjóðfélagið, því að bver slíkur einstaklingur er til þess að veikja það, en ekki styrkja. — Hvort sem foreldrarnir telja sig færa um eða ekki, að ala börn sín trúarlega og siðferðilega upp, því að vitanlega eru þeir foreldrar til, því miður, sem brestur stórum skilning á þessu, þá er eitt atriði, sem ber að rækja, en ekki láta undir höfuð leggjast, og þetta er að konut með börnin í kirkju sem oftast el'tir að þau fara að liafa eittlwert vit á því, sem þar fer fram. í fyrstu verður þetta náttúrlega aðallega til þess að hneigja hugi þeirra að kirkjuhúsinu sjálfu og ytri hlið athafnarinnar. En svo kemur hitt smám saman, að þau fara að Idusta sér til sálu- bóta á sálmana, sem sungnir eru, orgelspilið og orðið, sem flutt er. Öll ættum vér að vita, hversu mikið gildi þetta getur haft fyrir hinn unga, hversu mikla þýðingu það hefir fyrir framtíð lians, að liugur hans hneigist sem fyrst til fylgis við hið helga og háa. Hefir ekki heill og velferð fjölda margra verið háð þessu á liðnum öldum og áratug- um, verið háð því, hvaða slefnu hinum ómótaða barns-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.