Kirkjuritið - 01.04.1939, Page 20

Kirkjuritið - 01.04.1939, Page 20
154 Bjarni Jónsson: Apríl. Síðustu orðin á Undan páskaguðspjallinu eru jíessi: „Pílatus sagði við þá: Hér hafið þér varðmennina, farið, búið svo tryggilega um sem þér hafið hezt vit á. Og þeir fóru burt og gengu tryggilega frá gröfinni með því að innsigla steininn i viðurvist varðmannanna.“ (Matt. 27, 65—66). Það var búið svo tryggilega um sem þeir höfðu bezl vit á. Innsigli var sett á steininn og varðmennirnir áttu að gæta hins dána manns. Enn í dag horfa margir á innsiglið. „Jesús er dáinn. Sjáðu innsiglið. Sjáðu varðmennina.“ Höfum vér ekki oft heyrt þetta? „Þekkingin hefir setl innsigli sitt á stein- inn. Vísindin liafa sett nafn sitt undir innsiglið.“ En altaf heyrist játningin: „Jesús er upprisinn“. — Er þá þekk- ingin samþykk þeirri játningu? Ekki altaf, en oft. Hugs- um um hina mörgu, sem voru auðugir að þekkingu, hugs- un um sanna vísindamenn, sem játa: „Þekking vor er í molum, og vér gleðjumst, er liún eyksl. En aldrei skal þekking vor fá að svil'ta oss hinni beztu þekkingu, að þekkja drottin og kraft upprisu hans.“ Þekkingin útrýmir ekki trúnni. Gæti það hugsast, að liann, sem er sannleikurinn, gæti ekki þolað birtu sannleika og þekkingar? Sönn þekking eyðir ekki trúnni. Hvað segh’ heilagt orð ? „Vísindamaðurinn segir i hjarta sínu: Eng- inn Guð.“ Nei. Orðið segir: „Iieimskinginn segir í hjarta sínu: Enginn Guð.“ En vantrúin vill, hvað sem það kostar, innsigla stein- inn. Og þess vegna eru varðmenn settir hjá gröfinni. Þeir eru fulltrúar valdsins, sem segir: „Burt með trúna. Jesús er dáinn. Gröfin er innsigluð. Steininum er velt fyrir dyrnar.“ En nú byrjar páskaguðspjallið. Hvernig byrjar það? Fóru lærisveinarnir út að gröfinni, til þess að fagna hin- um upprisna? .Tesús hafði sjálfur sagt, að hann mundi rísa upp frá dauðum. Engillinn bendir á þetta, er hann segir: „Hann er upprisinn, eins og hann sagði.“ Fóru læn-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.