Kirkjuritið - 01.04.1939, Page 21

Kirkjuritið - 01.04.1939, Page 21
KirkjuritiS. Ég trúi á upprisinn frelsara. 155 sveinarnir fagnandi út að gröfinni? Nei. Þeir hugsu'ðu einnig i sárri hrygð um dáinn mann. Það leit ekki vel úl 1 kristnum söfnuði á þessum páskamorgni. Það er rökkurhúm yfir þessum orðum: „Þeir gengu tryggilega frá gröfinni með því að innsigla steininn.“ En 1 næsta versi segir: „En eftir hvíldardaginn, þegar lýsti aí fyrsta degi vikunnar kom María Magdalena og María hin, til að líta eftir gröfinni.“ Heill þessum konum. En þó koma þær ekki fagnandi. l3aer koma til að líta eftir gröfinni. Einnig þær leita að hánum manni. 1 hjörtum þeirra er sorg og kærleikur. hess vegna koma þær með ilmsmyrslin, þess vegna koma þær með ilmjurtir að gröfinni. En er þetta ekki lýsing á páskunum einnig nú í dag? Horfa menn ekki á stóran stein, sem velt er fyrir dyrnar? Einblína menn ekki á innsiglið? Eru menn ekki hræddir við varðmennina? Þora menn að fagna hinum upprisna? Er ekki ennþá kvöldhúm hjá gröf liins krossfesta? Eru ekki niargir, sem setja púnkt á eftir 27. kapítula Matteus- arguðspjalls og sleppa 28. kapítulanum? Þá verður ekki bjarl yfir páskunum. Ekki er þá gott a® vei'a prestur á páskunum. Fara þær þá ekki að fvrnast, lofræðurnar um hinn dána mann. bað leit ekki vel út á páskamorgni, er gengið var út gröfinni. •lú, það leit vel át. Það var einn, sem hafði búið tryggi- ^efía um. Það var einn, sem vissi, hvað hann ætlaði sér gjöra. Það var einn, sem lét vísdóminn, kærleikann °g máttinn birtasl í sinni fyllingu. Guð elskaði heiminn, cEkaði hann i verki, elskaði liann svo mikið, að hann gaf Una heztu gjöf, sem heiminum hefir verið gefin. Þessi g.]óí var fullkomin. Hér var hinn saklausi og hreini. Þenn- an Jesúm uppvakti Guð. Upprisan var eðlileg afleiðing ms syndlausa og fullkomna lífs. Dauðinn gat ekki hald- honum.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.