Kirkjuritið - 01.04.1939, Side 34

Kirkjuritið - 01.04.1939, Side 34
168 Sönglistarsjóður Stokkseyrark. Ápril. en áður, og er það gleðiei'ni, því að slíkt heldur eklci aðeins ungu fólki frá óreglu og leti, heldur miðar til þess að hressa og styrkja likamann. En sönglistin göfgar anda manns og sál, glæðir skilning og ást til þess, sem gott er og fagurt, lyftir hug og sál í hæðir til drottins. Það var áreiðanlega heillaspor, þegar kirkjan lók sönglistina í sína þjónustu og gerði safnaðarsöng- inn að svo virðulegum þætti i guðsþjónustunni. Safnaðarsöngurinn er dýrmæt eign kirkjunnar, sem mikla og góða rækt þarf að ieggja við. Sönglistarsjóð Stokkseyrarkirkju ber fyrst og fremst að skoða sem aðstoð við safnaðarsönginn. Þegar hann er þrjú þúsund kr., má taka þar út hálía vext ár hvert, sem söngflokkurinn notar í sínar þarfir til söngs við kirkjuna. Söngmenn kirkjunnar eru nú 12, þar af 6 í karlakór kirkjunnar. Sjóður þessi hefir dai'nað vel þessi 10 ár, þann 31. des. 1938 var hann kr. 2.000.00. Vona ég, að hann geri fljótt skil. Skipu- lagsskrá hans er i Stjórnartiðindunum, B-deiId 1932, bls. 294, og á þessa leið: 1. grein. Sjóðurinn heitir Sönglistarsjóður Stokkseyrarkirkju. Stofn- aður 5. apríl 1928 af Gísla Pálssyni, organleikara við Stokkseyr- arkirkju. Stofnfé kr. 250,00 — tvö hundruð og fimtíu krónur. 2. grein. Sjóðnum stjórnar 5 manna nefnd. Sóknarnefndin, 3 menn, og organleikari, sjálfkjörinn. Svo kýs söngflokkurinn 1, eða það sem vantar í fimm menn. Nefndin sér um að efla sjóðinn með frjálsum samskotum, söngskemtunum, hlutaveltum og ýmsu því, er hún sér hezl lienta, en ekki með neinum skyldugjöldum. 3. grein. Þegar sjóðurinn er orðinn kr. 3000,00 — þrjú þúsund krónur — má taka út hálfa vexti ár hvert, sem söngflokkurinn skiftii' í fyrirhöfn sína við söng kirkjunnar, eða til að menta einn eða fleiri í sönglist, sem á að koma þeim að góðum notum við kirkjusönginn. Sönginn skal æfa og vanda á ári hverju með góðum áhuga og vandvirkni, svo góður verði. 4. grein. Nú falla æfingar niður og söngurinn er ekki góður að dómi nefndarinnar. Skal þá ekki taka út vexti það ár. Leggjast þeir þá við höfuðstól til að auka hann sem mest, svo söngflokkurinn fái vilja á að hafa sönginn sem beztan að hægt er með þekkingu, vilja og góðri ástundun.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.