Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1939, Qupperneq 35

Kirkjuritið - 01.04.1939, Qupperneq 35
Kirkjuritið. Unimæli Roosevelts uni trúna. 169 5. grein. Sjóðinn má aldrei skerða. Hann skal vera á góðum rentu- stað, vel trygðum, t. d. Söfnunarsjóði íslands. Hann skal vera eign Stokkseyrarkirkju og notaður í þessar þarfir, sem af ofan er getið, en ekki skal hann renna saman Við sjóð kirkjunnar, og ávalt skulu reikningar hans færðir út af fyrir sig í þar til gerða bók við kirkjuna. Ákvæði laga, um að fé kirkria skuli ávaxta í hinum almenna kirkjusjóði, ná ekki til þessa sjóðs. Þó hin evangeliska-lúterska kirkja hætti að vera þjóðkirkja ís- lands, má sjóður þessi aldrei verða eign ríkisins, heldur skal hann þá verða algjör eign evangelisk-lútersks safnaðar Stokks- eyrar. 6. gi-ein. Heikningur sjóðsins skal lesinn upp ár hvert á safnaðarfundi nieð reikningum kirkjunnar, útskýrður eftir þörfum og fylgja eeikningum hennar til prófasts, undirskrifaður af nefndinni. Gísli Pálsson, Hoftúni viff Stokkseyri. UMMÆLI ROOSEVELTS UM TRÚNA. I ávarpi Roosevelts Bandaríkjaforseta til þingsins eru orð um h'úna, sem vakið hafa athygli um hinn kristna heim. En þau eru á þessa leið: .jStormar handan um haf skella á þremur stofnunum, sem Aineríkumenn geta ekki án verið, hvorki fyr né siðar. Fyrst og iremst er það trúin. Og hún er undirrót hinna tveggja, lýðræð- isins og traustsins í viðskiftum þjóðanna. Trúin veitir mönnum þekkingu á því, að þeir eru Guðs ættar, vekur skilning ein- staklingsins á gildi hans og kennir honum að virða sjálfan sig með því að virða aðra .... Árásirnar á frelsi trúarinnar hafa komið úr gagnstæðum átt- um við iýðræðið. Þar sem því hefir verið steypt, þar hefir andi R’jálsrar guðsdýrkunar orðið að þoka. Og þar sem trúin og lýð- ræðið hafa orðið að víkja, þar hefir taumlaus metnaðargirnd og dýrslegt ofbeldi rekið hurt traustið og gætnina i þjóðaviðskiftun- um. Þjóðfélag, sem hvorki vill hafa trú, lýðræði né traust að óakhjarli, mun hvergi eiga rúm fyrir hugsjónir Friðarkon- ungsins. Bandaríkin hafna slíku þjóðskipulagi og halda fast við lorna trú sína.“

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.