Kirkjuritið - 01.01.1946, Page 71
KirkjuritiÖ.
Hinn alinenni kirkjufundur.
65
ar Seyðisfjarðarsóknar. Voru þar haldnar margar ræður og end-
að með bæn og sálmasöng'.
í sambandi við fundinn voru eftirtaldar guðsþjónustur og
trindi flutt í Seyðisfjarðarkirkju, við ágæta aðsókn:
Föstqdagskvöld kl. 9 prédikaði séra Sigurjón Jónsson; séra
Harínó Kristinsson var fyrir altari. — Á eftir flutti séra Er-
lendur Sigmundsson erindi: „Kirkjan og þjóðfélagsmálin“.
Laugardagskvöld kl. 9 prédikaði séra Jakob Einarsson próf.
A eftii- flutti séra Pétur Magnússon erindi: „Eitt er nauðsynlegt“.
Sunnudaginn kl. 2 prédikaði séra Pétur Magnússon; séra Jakob
Finarsson var fyrir altari.
Fundinum lauk siðari liluta mánudags með altarisgöngu.
Hinnjalmenni kirkjufundur.
Hinn almenni kirkjufundur var haldinn á Akureyri 9.—11.
sePt. f. á. í sambandi við aðalfund Prestafélagsins.
Guðsþjónustur og erindi voru sanieiginleg fyrir báða fund-
uia, og liefir þeirra þegar verið getið í skýrslu um Prestafé-
I^gsfundi nn.
Kirkjufundurinn var setlur kl. 2 e. h. í hátíðasal Menntaskól-
ans. Formaður undirbúningsnefndar, Gísli Sveinsson sýslumað-
llr og Alþingisforseti, bauð presta og fulltrúa og gesti velkomna
°§ flutti mjög snjallt ávarp. Hvatti hann til aukinna starfa og
Samtaka fyrir málefni kristni og kirkju, varaði við þröngsýni
°8 bókstafstrú og innbyrðisbaráttu um aukaatriði, aðalatriðið
v*ri Jjað að vinna í anda Krists að eflingu Guðs rikis.
Lá var tekið fyrir fyrsta mál á dagskrá fundarins: Miðstöð
kirkjulegs menningarstarfs á íslandi. Framsöguerindi fluttu
biskup íslands og Valdimar V. Snævarr fyrrv. skólastjóri.
Hvöttu þeir eindregið til J)ess, að liafizt yrði handa um bygg-
ln8U kirkjuhúss i Reykjavík, er verða skyldi miðstöð kristi-
Kgrar menningarstarfseml í landinu. Yrðu í því húsi bæði
skrifstofur, samkomusalir, prentsmiðja, bókastöð o. fl.
Fékk mál J)etta hinar beztu undirtektir og var mikið rætt síð-
ar á fundinum. Kom fram lijá ræðumönnum öllum rikur skiln-
lngur á þeirri nauðsyn, sem frummælendur höfðu bent á, að
Lii'kjan eignaðist starfsmiðstöð. Með breyttum timum og breytt-
11 ni aðstæðum yrði einnig að verða breyting á starfsháttum
kirkjunnar. Nefnd var kosin í málið, og hlutu Joessir kosningu:
Séra Árni Sigurðsson fríkirkjuprestur.