Kirkjuritið - 01.01.1949, Page 78
Kristsmyndin í jólaheftinu.
I jólahefti Kirkjuritsins 1947 var birt hin undurfagra Krists-
mynd Bertu Valerius, og í orðum, sem myndinni fylgja, segir
ungfrú Ingibjörg Ólafsdttóir réttilega, að myndin sé mikið
þekkt, „sérstaklega síðan spíritistar tileinkuðu sér hana.“
Ég þykist vita, að ýmsa lesendur muni fýsa að vita einhver
frekari deili á þessu máli, en saga Kristsmyndarinnar er í fám
orðum þessi:
Ungfrú Berta Valerius átti heima í Stokkhólmi, og í einka-
kapellu þar í borginni hefir myndin verið geymd. Ungfrú Vale-
rius lærði hvorki að teikna né mála, og aðra mynd gerði hún
ekki um dagana.
Það var árið 1856, að einhver dularrödd sagði Bertu Valerius,
að hún ætti að fá sér tæki til að mála, því að henni væri ætlað
að gera mynd af frelsaranum. Henni brá við þessa óvæntu
skipun, og þótti henni þetta í byrjun slík fjarstæða, að hún
leiddi málið alveg hjá sér. En dularröddin gáfst ekki upp.
Hvað eftir annað talaði hún til ungfrú Valeríus, hvatti hana
til að hefjast handa og kvaðst vera óánægð með myndimar
af hinum blóðuga, deyjandi Kristi. Hún sagðist mundu stjórna
hendi hennar til að gera nýja Kristsmynd, mynd af hinum lif-
andi friðarhöfðingja. Hann væri enn hinn lifandi leiðtogi mann-
anna, og þannig ættu þeir fremur að minnast hans, en sem
hins deyjandi, þjáða harmkvælamanns. Og hin dularfulla rödd
talaði til hennar eitthvað á þessa leið: Það er ætlunarverk þitt
að mála þessa mynd, og þegar því er lokið, skaltu fá að hverfa
hljóðlega af jöröunni.
Nú var svo komið, að Bertu Valerius þótti sér ekki undan-
komu auðið, hún yrði að leggja út í þetta furðulega fyrirtæki.
Hún kunni ekkert í málaralist, og herini datt ekki í hug að fara
að afla sér fræðslu um hana. En hún gerði það, sem henni var
sagt, hún náði sér í tæki til að mála, og þegar hún hóf verkið,
fann hún, að hendi hennar var stjórnað og að hún var á valdi
einhvers annars afls, se mtil verksins kunni. Stundum liðú langir
tímar svo, að hún snerti ekki á myndinni, en svo komu þau
augnablik, að hún þóttist kenna hinnar dularfullu nálægðar