Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1952, Side 6

Kirkjuritið - 01.12.1952, Side 6
D A G I S E N N Eftir Lírni Sandell-Berg. — Dag í senn, eitt augnablik í einu. — Ó, sú huggun stormum lífsins í. Ég stend aldrei ein í stríði neinu, ef ég kvíðalaus til Drottins flý. Hann mér föðurást og umsjá heitir, út mér hlutar sérhvern nýjan dag þörfum lífsins: þreytu’ og hvíld hann veitir, þrautir, gleði, sorg og unaðshag. Sérhvern tíma sjálfur hjá oss er hann, sýnir hverjum degi vissa náð. Sorg og dagsins mæði með oss ber hann. Mundu, barn, að hann á kraft og ráð. Morgundagsins þraut ei þarf að kvíða, þó að brautin ótrygg virðist mér. Treysta forsjón Drottins, biðja' og bíða, boðorð það af honum gefið er. Veit þú mér, að hvíld og frið ég finni fyrirheitum þínum, Guð minn, í. Heilagt orð þitt svali sálu minni, sundur leysi öll mín harmaský. Gef að þiggi ég með hjarta hreinu hverja náðargjöf, sem veitist mér, dag í senn, eitt augnablik í einu, unz til landsins góða heim ég fer. Einar M. Jónsson þýddi.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.