Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 27

Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 27
 ALTARISTAFLA DG PRÉDIKUN í MÆLIFELLSKIRKJU Aðfaranótt 21. septembermánaðar 1921 skeði sá rauna- legi viðburður að Mælifelli í Skagafirði, að bærinn og kirkjan brunnu til kaldra kola á skammri stundu. Fregn þessi snerti mig sárlega, því að þennan bæ og þessa kirkju höfðu foreldrar mínir reist, og við þessi hús y°ru flestar mínar hreinustu og fegurstu bernskuminn- ingar tengdar. Kirkjan var reist nokkru síðar, lítil steinkirkja, og ekki nóg til hennar vandað. Veggir voru ekki einangraðir og fleira af vanefnum gert. Kirkjan fór því mjög illa og var ^sesta óvistleg. Gekk svo fram um hríð. Upp úr 1930 fór ég að mála með olíulitum, og kom mér Þá til hugar að reyna að mála altaristöflu í þessa kirkju æskustöðvanna, Kom ég að Mælifelli að mig minnir árið 1935 og skoðaði kirkjuna. Datt mér í hug, en þó ekki fyrr en nokkru síðar, að skemmtilegast væri að mála á sjálf- nn kórgafl kirkjunnar. Hann er nokkuð á þriðja metra a breidd og eitthvað svipað frá altari upp í boga. Fór ég að vinna að undirbúningi þessa og útvegaði mér nakvæm mál af kórnum. Séra Tryggvi Kvaran var þá Prestur á Mælifelli, og sendi hann mér pappírssnið af kórn- nni ofan altaris. Sneið ég nú léreft eftir þessu og fór að ^nna að því að kompónera myndina. Gekk svo mörg ár, ég teiknaði og málaði og missti kjarkinn því meir, sem lengra leið. Hætti ég alveg langa tíma, og hugði ég að ekki yrði úr þessu annað en loftkastalar. Þótti mér leið-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.