Kirkjuritið - 01.12.1952, Side 58
264
KIRKJURITIÐ
hugsjóna afli þar sem menn vita af eigin reynslu, hvern-
ig nýtt, siðferðilegt vor getur runnið upp. Verkamenn
og hermenn, húsmæður og stjórnmálamenn, bændur og
iðnaðarmenn, ungir og gamlir hafa að vísu ekki nýjar
skriflegar áætlanir fram að færa, heldur reynslu, sem
ekki er unnt að neita. Þau vita, að hjartað getur breytzt.
Þau vita, að irnnt er að láta Guðs hönd leiða sig, nú á
dögum eins og ávallt áður.
Fyrir nokkru var ég staddur við hátíðahöld í Róm til
minningar um hinn heilaga Nikulás frá Fliie, stjórnmála-
mann, sem lifði í Sviss á 15. öld. Nikulás var gædd-
ur guðinnblásnum stjórnarhæfileikum. Við það að beita
þeim varð hann frelsishetja þjóðar sinnar. Hann var bóndi
og ræktaði vel jörð sína, hermaður, embættismaður. Um
fimmtugsaldur hans krepptu svo að vandamál og alls
konar nauðir manna, að hann sagði skilið við allt nema
það eitt að hlýðnast af heilum hug og hjarta handleiðslu
Guðs. Djúpur skilningur hans og innsæi, mannþekking
og heilindi hugarfarsins höfðu náð þeim þroska, að hann
varð mjög mikils metinn af samtíðarmönnum sínum, og
það ekki aðeins í Sviss, heldur um alla Norðurálfuna. Hann
varð sá maðurinn, er mest varð leitað til í vanda stjóm-
málanna. Þegar við lá, að deilur Kantónanna hleyptu af
stað borgarastríði, þá leiddi guðinnblásið svar hans Sviss-
lendinga inn á veginn góða og sameinaði þjóðina. Það er
eftirtektarvert tákn tímanna, að stjórnmálamaður, sem
lifði fyrir fimm öldum, hlustaði á orð Guðs og greiddi
því braut til samtíðar sinnar beint og óhikað, skuli ein-
mitt nú hljóta fyllstu viðurkenningu. Vissulega er hann
helgur maður fyrir vora tíma — maður til fyrirmyndar
Sameinuðu þjóðunum.
Stjórnmálamaður undir handleiðslu Guðs — sameinuð
þjóð. Er þetta svarið?
Utanríkisráðherra Araba mælti: „Mannkynið er statt
á krossgötum. önnur leiðin liggur til byltingar og glund-
roða. Hin til hrömunar og örvæntingar. Þriðji vegurinn