Kirkjuritið - 01.12.1952, Side 66
N í R ÆÐ I R P R E S T A R
1 kirkju Islands eru nú fimm prestar, sem náð hafa
níræðisaldri, og væri fróðlegt að vita, hvort svo hefir
verið nokkru sinni fyrr. Elztur þessara presta er séra
Þorvaldur Jakobsson, f. 4. maí 1860, þá næstur að aldri
séra Kristinn Daníelsson prófastur, f. 18. febr. 1861, þá
sér Magnús Bl. Jónsson, f. 5. nóv. 1861, og hefir níræðis-
afmæla þeirra allra verið getið hér í ritinu.
Hinn 27. september síðastliðinn varð séra Sigtryggur
Guðlaugsson prófastur á
Núpi í Dýrafirði níræður.
Hann á fagran starfsferil að
baki, bæði í kennarastöðu og
prestsstöðu. Hann gerðist
ásamt Guðmundi Hjaltasyni
brjóst fyrir lýðháskólastefn-
unni á íslandi og reisti Núps-
skóla og stjórnaði honum af
frábærum áhuga og ósér-
plægni um langt skeið. 'Er
garðurinn hans jmdislegi,
Skrúðurinn, táknræn mynd
af gifturíku starfi hans. Allt
kennimannsstarf hans hefir
verið í sama anda sem kenn-
arans, og mun hann hafa
komið til nokkurs þroska
flestum eða öllum, sem nutu
Sr. Sigtryggur GuSlaugsson