Kirkjuritið - 01.12.1952, Qupperneq 75
ERLENDAR FRÉTTIR
F°rsetaefni Bandaríkjanna og kristindómurinn.
Þegar þeir Eisenhower og Stevenson kepptu um forseta-
embættið í Bandaríkjunum, voru þeir spurðir um afstöðu sína
td kristinnar trúar. Báðir létu þeir í ljós mjög jákvæða af-
stöðu til kristindómsins og töldu hann nauðsynlegan þátt í
iífi hvers manns, ekki sízt þeirra, sem gegna eiga ábyrgðar-
niiklum störfum í þjóðlífinu og verða að taka mikilsverðar
ékvarðanir, er varða líf og framtíð heilla þjóða. Nú hefir mikil
abyrgð verið lögð á herðar Eisenhowers, og er gott að vita
um afstöðu hans til kristindómsins.
Wótmælendur í Bandaríkjunum.
Mótmælendur eru 34% af Bandaríkja-þjóðinni, samkvæmt
skýrslum frá 1951, en 19% eru katólskir. Alls eru 58% af
Bandaríkjamönnum, er tilheyra ákveðnu kirkjufélagi. Fjöl-
mennastir eru mótmælendur eða rúmlega 52 millj., en þeir
skiptast aftur í mörg trúarfélög, þá rómversk-katólskir rúml.
19 millj., Gyðingar 5 millj. og grísk-katólskir tæpar 2 millj.
^ijótandi kirkja.
í Hamborg í Þýzkalandi hefir verið unnið mikið að endur-
reisn á síðustu árum. Hafa margar kirkjur verið endurbyggðar
lagfærðar. Meðal annars hefir verið byggð þar „fljótandi
Kirkja“, til afnota fyrir sjómenn, er koma í höfn í Hamborg,
en bún er eins og kunnugt er ein mesta hafnarborg á megin-
andi Evrópu. Gömlu skipi var breytt þannig, að í því fékkst
Soður samkomusalur og aðrar vistarverur fyrir kirkjulega sjó-
^iannastarfsemi. Minnir þetta á „Bethelskipin“ norsku, sem
yigja norska fiskveiðiflotanum við strendur Noregs.
blýr reynslutími kirkjunnar í Austur-Þýzkalandi.
Kunnugir telja, að nýr reynslutími sé í vændum fyrir kirkj-
Una í Austur-Þýzkalandi. Hafa yfirvöldin þar gefið út tilskip-
Un> þar sem kirkjunni er boðið að slíta öllu sambandi við
rezkar og amerískar stofnanir. Einnig hafa prestum verið
‘Sett strangari fyrirmæli um að skipta sér ekki af stjómmál-