Kirkjuritið - 01.04.1954, Side 11
TRÉN TVÖ í KROSSINUM
153
Sá maður vissi ekki, hvað hann sagði. Því að neyð ver-
aldarinnar hefir níst hjarta hans. Hann gleymdi kross-
inum. Þeim verður það mörgum, þegar þeir tala um Guð
°g heiminn, eins’ og hann er. Fyrst hafna menn kross-
inum — þeir vilja ekki heyra hann nefndan, hafa hans
enga þörf — og síðan spyrja þeir, hvemig Guð breyti í
naun og veru við heim, þar sem svo mikið sé af illu. Þar
er krossinn svarið. Og vilji menn ekki hlýða á það svar,
Þá fá þeir í raun og veru ekkert svar. En þá er það ekki
heldur kristindóminum að kenna. Á krossi Krists hefir
kærleiki Guðs orðið fyrir allri vonzku veraldarinnar. Á
krossinum gengur hann á hólm við hana. Krossinn birtir
oss kærleika Guðs, sem það gjörir. Gyðingar hugðu, að
Þegar Guð tæki í taumana og berðist við vonzku veraldar,
þá myndi hann mola og tortíma. Þeir eru alltaf margir,
sem hugsa sér það. En Guð í Kristi fór aðra leið. Hann
hefir gengið á hólm við vonzku veraldar. En stríð hans
var fórn — fórn búin mætti til hjálpræðis.
Krossinn merkir það, að kærleiki Guðs er kominn alla
leið niður til vor, hvar sem vér erum staddir. Hversu djúpt
sem mannslíf er sokkið — mun kærleikurinn, er þoldi
Píslir á krossi, lúta niður enn dýpra til þess að hefja það
UPP til ljóssins. Inn í heim hins versta, sem mennirnir geta
drýgt, gekk þessi kærleiki, til þess að vér skyldum aldrei
Þurfa að verða viðskila við Guð að fullu og öllu. Þyngsta
hölvun syndarinnar er sú, að hún grefur djúp milli mann-
anna og Guðs. Þeir hafa á öllum tímum haft hugmynd
Um það, að þeir væru orðnir viðskila við Guð sökum
synda þeirra. Og þeir hafa leitazt við það sjálfir að treysta
sambandið á ný. En aðeins einn megnar það........Guð
sjálfur. Hann hefir gjört það með krossi Jesú Krists. Allar
fórnfæringar ýmissa trúarbragða eru tilraunir mannanna
til þess að láta allt gróa aftur um heilt. Fórnin á Golgata
er annars konar. Þar eru það ekki mennirnir, sem færa
Guði fórn til þess að bæta það, sem syndin hefir brotið
°g skemmt. Þar er það Guð sjálfur, sem færir fómina.