Kirkjuritið - 01.04.1954, Side 32
174
KIRKJURITIÐ
sambúð við hans dóttur. Sveinn selur sira Ölafi sjálfdæmi í
málinu, og verða þau Hallfríður að ganga að allhörðum kost-
um. Má þvi þykja sýnt, að spjöll hafi nokkur orðið í sam-
búðinni og Sveinn flekað dóttur sira Ólafs, en þessa er hvergi
getið annars staðar í heimildum. Móðerni Hallfríðar er eigi
þekkt, því ólíkindi eru til, að Ólafur hafi átt hana með Sigríði
Sigurðardóttur, er varð kona hans. Afdrifa þeirra Sveins og
Hallfríðar er'hvergi getið. Dótturbörn herra Ólafs hafa verið
til eftir því, sem segir í Sigurðarregistri 1569, en eigi eru þau
nafngreind.
Herra Ólafur átti einnig son, Hjalta að nafni, er prestur
var í Fagranesi á Reykjaströnd, rýru prestakalli, og drukknaði
á Skagafirði á Þorláksmessu fyrir jól veturinn 1588. Sira
Hjalta getur fyrst í skjölum í bréfabók herra Guðbrands árið
1571. Má af bréfabókinni sjá, að sira Hjalti hafi verið blá-
snauður maður, og er átakanleg lýsingin á neyð hans árið
1574. En það er eftirtektarvert, að það er Jón lögmaður’ Jóns-
son, sem bendir Guðbrandi á neyð sira Hjalta. Og það skal
þó sagt, að Guðbrandur reynir eftir megni að bæta úr henni,
því að bóngóður var hann öllum þurfandi mönnum. En
fremur er það fágætt, að biskupssonur sitji i rýru brauði við
kröpp kjör. Mætti draga af því þá ályktun, þar sem sira
Hjalta getur fyrst í heimildum frá dögum herra Guðbrands,
að hann hafi þá verið fremur ungur, enda er það stutt af
öðru. 1 Fitjaannál frá síðara hluta 17. aldar er svo talið, að
Ólafur hafi átt þenna son með Sigríði Sigurðardóttur, áður
en hann varð biskup, og þá áður en þau gengu í hjónaband,
en eigi er það víst, að sú heimild sé rétt.
Þegar tilraun er gjörð til að lýsa hjónabandi þeirra Ólafs
og Sigríðar, verða það miklir erfiðleikar að meta og vega
heimildir, að hér gefst ekki rúm til annars en að draga fram
nokkrar staðleysur og staðreyndir og lýsa niðurstöðum í mjög
stuttu máli.
Eigi er vitað, hvenær þau Sigríður og Ólafur gengu í hjóna-
band, en í heimildum er svo talið, að hústrú Sigríður hafi
verið systir sira Jóns Sigurðssonar í Laufási, er varð þar eftir-
maður herra Ólafs. Sé þetta rétt, þá ætti hún að hafa verið
sonardóttir sira Jóns Finnbogasonar í Laufási, er var þar for-
veri Ólafs Hjaltasonar. Það er eftirtektarvert, hversu vel herra